Leita í fréttum mbl.is

Jólagardínur og jólasaga

Gardínurnar eru fundnar. Mistökin sem ég gerði þetta árið var að leita ekki að kassa ofan í kassa. Jólagardínurnar voru samanbrotnar og eins og nýstraujaðar ofan í Fedex kassa sem aftur var ofan í öðrum kassa. Alveg eins og ég hélt: afskaplega vel frá gengið. Mér er ekki alls varnað þó að stundum mætti halda annað.

Í kvöld hef ég víxlað orðum í setningum hvað eftir annað.

Settu skápinn í sokkana, sagði ég við Gelgjuna...

Oh, have another drink, sagði Bretinn þegar þriðja vitleysan rann upp úr mér.

---

Ég ætla að skella hér inn jólasögu sem ég skrifaði í fyrra og birti á blogginu. Örugglega margir sem ekki lásu þá:

Hvít ljós og kókostoppar

Lítil stúlka situr við gluggann og styður hönd undir kinn. Úti er kolniðamyrkur og það eina sem hún sér er regnið sem lemur rúðurnar og kyrrlátur logi kertanna sem speglast í glerinu. Hugur hennar er víðsfjarri og lítil áhyggjuhrukka er á enninu.

 Í einu horni stofunnar stendur fagurgrænt jólatré með hvítum ljósum. Litlu stúlkuna langaði að hafa eingöngu hvít ljós á tréinu þetta árið og hún fékk að ráða. En núna þykja henni ljósin svo dauf og litlaus. Kannski tók hún ranga ákvörðun.

Á gólfinu eru kassar og box með marglitu jólaskrauti sem bíður eftir að komast á sinn stað á grænar greinarnar.

Lilja. Lilja mín.

Stúlkan hrekkur upp úr hugsunum sínum þegar mamma hennar styður hendi létt á öxl hennar. Hún lítur upp og mamma strýkur fingri létt yfir nefbroddinn á henni.

Hvað segirðu um að ég hiti handa okkur súkkulaði? Segir hún. Svo getum við skreytt jólatréið.

Lilja kinkar kolli og reynir að brosa. En varirnar hlýða ekki almennilega og brosið nær ekki til augnanna.

Mamma horfir á hana andartak og hana svíður sárt í hjartað. Það er ekkert réttlæti í því að 11 ára stúlka þurfi að bera byrðar fullorðinnar manneskju.

Svona, komdu nú, segir hún blíðlega. Hjálpaðu mér að laga súkkulaðið. Þetta verður allt í lagi.

Lilja eltir mömmu sína hlýðin fram í eldhús. Hún sækir pott inn í skáp og setur á eldavélahelluna. Svo nær hún í stól, dregur hann að hornskápnum í eldhúsinu og stígur upp á hann. Teygir sig eftir könnunni sem aðeins er notuð undir heita súkkulaðið á jólunum. Amma átti þessa könnu og notaði hana líka undir jólasúkkulaðið. Kannan er í fallegum kóngabláum lit með gylltri rönd á stútnum og á lokinu.

Lilja þarf að standa á tám til að ná upp í efstu hilluna í skápnum. Hún teygir sig eins og hún getur, og nær taki á könnunni. Á síðustu jólum náði hún ekki upp. Þá þurfti pabbi að lyfta henni. En nú er pabbi ekki hér svo það er eins gott að Lilja hefur stækkað síðan í fyrra.

Mæðgurnar sýsla um stund í eldhúsinu. Þær eru hljóðar og hugsa sitt. Úti fyrir beljar regnið á gluggunum og hávaðinn í storminum útilokar samræður í eðlilegum raddstyrk.

Á meðan mamma lagar súkkulaðið eins og enginn getur nema hún, hellir Lilja rjóma í skál og kveikir á handþeytaranum. Hún horfir á rjómann þykkna smám saman og ímyndar sér að hún svífi og horfi niður á mjallarhvít og dúnmjúk ský. Heim, þar sem veðrið er stillt og fagurt og sjórinn fyrir neðan skýin er spegilsléttur og alls ekkert hættulegur.

Hún andvarpar og slekkur á þeytaranum. Leggur skálina með rjómanum á eldhúsborðið og fylgist svo með mömmu hella sjóðandi heitu og ilmandi súkkulaðinu yfir á kóngabláu könnuna. Lilja tekur eftir því að mamma er örlítið skjálfhent. Hún tekur líka eftir nýjum línum í laglegu andliti mömmu og veit að henni er ekki eins rótt og lætur.

Jæja, segir mamma hressilega. Þá er þetta tilbúið.

Hún hellir súkkulaði í tvo kóngabláa bolla með gylltri rönd á barminum og setur matskeið af rjóma í hvorn bolla.  Á meðan þær bíða eftir að drykkurinn kólni raðar mamma súkkulaðibitasmákökum á lítinn bakka. Kókostopparnir verða ekki snertir fyrr en á eftir matinn á morgunn, þegar búið er að ganga frá í eldhúsinu og allir sestir inn í stofu. Þeir fullorðnu með kaffibollana sína og krakkarnir með augun á öllum gjöfunum undir tréinu.

Lilja hefur samt staðið pabba að verki við að laumast í kókostoppana á aðfangadagsmorgunn. Þegar mamma var enn sofandi. Lilja kom inn í eldhúsið og greip pabba með hendina í kökukrúsinni.

Pabbi  þó!!  sagði hún með andköfum og hann leit á hana með prakkarasvip á andlitinu sem var þakið skeggbroddum. Augun glömpuðu og hún gat ekki annað en skellihlegið. Þann morgunn fékk hún kókostoppa og mjólk í morgunmat og pabbi dýfði sínum í kaffið. Þau spjölluðu á lágum nótum til að vekja ekki bakarann og Lilja sagði honum sögur úr skólanum og pabbi sagði frá spegilsléttum gjöfulum sjó og öldutoppum á stærð við blokkirnar hinum megin við götuna þeirra.

Allt þetta hugsar Lilja um á meðan hún hrærir í bollanum sínum og virðir fyrir sér dökkbrúnt súkkulaðið og hvítan rjómann blandast saman. Fyrst sem skýrar afmarkaðar línur, en sameinast að lokum í einn lit. Ljósbrúnn tónn. Ef pabbi væri með þeim núna væri hann án efa að raula fyrir munni sér jólalög á milli þess sem hann maulaði súkkulaðibitakökur og stryki mömmu um vangann.

Mamma, segir Lilja.

Já elskan mín, svarar mamma.

Er veðrið að versna?

Mamma stendur upp án þess að svara og gengur að glugganum.

Lilja horfir á grannar axlirnar í hvítu prjónapeysunni og bíður eftir svarinu með öndina í hálsinum. Heldur niðrí sér andanum og kreistir augun fast aftur. Eins og að fyrir töfra gæti svarið breytt öllu. Hún óskar þess  heitt og ákaft að þegar hún opni augun, standi pabbi píreygður og brosandi fyrir framan hana.

Síminn hringir. Hljóðið er hvellt og skerandi og hjartað í Lilju tekur kipp. Hún lítur á mömmu sem snýst á hæli og sér að augun hennar eru stór og dökk og óttaslegin. Og Lilja fer að gráta. Hljóðlausum gráti sem rífur og slítur í brjóstið og henni finnst hún ekki geta andað.

Mamma gengur hröðum skrefum að símanum og horfir á svart tækið sem framkvæmir þennan hræðilega hávaða. Loks er eins og höndin láti af stjórn og hún lyftir tólinu upp að eyranu.

Halló, hvíslar hún. Ræskir sig og hækkar röddina. HALLÓ.

Hún snýr baki í eldhúsið svo Lilja getur ekkert ráðið úr svip hennar.  Svo kinkar mamma kolli og axlirnar byrja að hristast þar til allur líkaminn skelfur og titrar. Lilja lamast af skelfingu. Hún getur ekki einu sinni grátið. Óttinn heldur henni í heljargreipum og tárin þorna á vöngunum.

Mamma! Reynir hún að segja en ekkert heyrist. Hún teygir hendurnar á móti mömmu sinni. Þráir faðminn hennar í umkomuleysinu. Og  skyndilega er mamma komin og tekur hana í fangið. Heldur henni þétt í hlýjum, öruggum örmum.

Þeir eru komnir í land, hvíslar hún ofan í dökkan hrokkinkoll stúlkunnar sinnar og skyndilega sér Lilja hvað hvítu ljósin á tréinu skína skært. Mig langar í kókostoppa, segir hún.

Og þá fær hún. Eins marga og hún getur í sig látið. Pabbi mun skilja það svo vel.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús á þig og góða ljúfa nóttina

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.12.2008 kl. 23:28

2 Smámynd: Ragnheiður

Ég las ekki þessa sögu í fyrra, hún er yndisleg jólasaga.

Gott að þú fannst gardínurnar, þá þarf ég að leita að mínum, það verður ekki flókið - held ég !

Knús í bæinn

Þegar mamma dó þá sá ég meðal annars eftir því að hafa ekki skrifað niður hin mörgu mismæli hennar sem oft urðu stórbrotin. Ég man bara ein núna : Hún kallaði mig Gríslragning...

Ég var kölluð ýmist Ragna eða Gríslíngur þegar ég var krakki

Ragnheiður , 16.12.2008 kl. 23:32

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er saga sem vert er að lesa hvert ár, yndislega falleg, minnir á hvað það er sem skiptir öllu máli og er tilfinningaþrungin út í eitt. Takk elsku Jóna mín. 

Ásdís Sigurðardóttir, 16.12.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Þakka þér fyrir þessa fallegu jólasögu, gott að þú fannst jólagardínurnar, nú hefur þú það skjalfest hvar þú fannst þær, mundu þá að skjalfesta hvar þú gengur frá þeim næst.

Hafið það sem allra best á aðventunni.

Góða nótt Brynja og Emma.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 17.12.2008 kl. 00:57

5 identicon

Takk fyrir æðislega sögu. Nú geta Jólin byrjað.Gleðileg Jól

jón þór (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 08:34

6 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

gamla góða kassi ofan í kassa trikkið

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 17.12.2008 kl. 08:55

7 identicon

Sniff, sniff, sniff........... á engin orð...... sit bara og græt!!!

Kem aftur til baka 3. jan.

Gleðileg jólin.

LBH (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 09:14

8 identicon

Ótrúlega falleg saga, þú ert algjör snillingur, ég fékk gæsahúð.

Gleðileg jól handa þér og þínum.

Guðbjörg (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 11:50

9 Smámynd: Kristín Bjarnadóttir

Fyrsta skipti sem tár leka ofan í tölvuna mína.......

Mikið ofsalega falleg, lýsandi og vel skrifuð saga.

Takk fyrir mig

Kristín Bjarnadóttir, 17.12.2008 kl. 12:33

10 Smámynd: Erla Sólrún Valtýsdóttir

 Falleg jólasaga. Gott að gardínurnar fundust.  Verður þú einhverstaðar að árita bókina þína?

Erla Sólrún Valtýsdóttir, 17.12.2008 kl. 12:34

11 identicon

Yndisleg saga, takk fyrir mig :)

Svava (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 14:32

12 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Þú ferð villur vegar, bloggvinkona - það var hellingur af fólki sem las þessa sögu í fyrra

Mér var meira að segja bent á að lesa hana af einhverjum á sínum tíma, en var þá og þegar búinn að því. Einstaklega flott skrifuð smásaga. Og nú þegar þú hefur hlotið útgáfu-eldskírnina er bara að hella sér í skáldsöguna af fullum krafti; það er engin spurning að þú ert klár í slaginn.

Jón Agnar Ólason, 17.12.2008 kl. 15:04

13 Smámynd: Trilla

Þetta er ótrúlega góð saga......

Trilla, 17.12.2008 kl. 16:05

14 Smámynd: Dísa Dóra

Dísa Dóra, 17.12.2008 kl. 17:13

15 identicon

Alveg rosalega góð saga, las hana ekki í fyrra.

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1639952

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband