Leita í fréttum mbl.is

Sá Einhverfi í uppsveiflu

 

Ţađ er mikiđ ađ gera í vinnunni. Sem er gott. Í rauninni forréttindi á ţessum síđustu og verstu...

Ţađ er skrýtiđ ađ finna hvađ kuldinn dregur úr mér orku og gerir mig ţreytta. Í fyrsta skipti sem ég finn ađ ţađ er ekki skammdegiđ sem slíkt, heldur veđráttan. Almáttugur hvađ ég hljóma öldruđ núna.

Sá Einhverfi er í uppsveiflu ţessa dagana, sem ţýđir ađ hann slćr um sig međ nýjum setningum. Eđa öllu heldur betrumbćttum setningum. Og hann les. Les eins og herforingi. Les blöđin, les á skilti, les á nafnspjöld. Stautar sig fram úr orđum sem hann skilur hvorki upp né niđur í og áhuginn virđist óbilandi. Og hann er glađur. Ţađ er mikilvćgast af öllu.

Í kvöld var hann ađ púkast í Vidda Vitleysingi og kettinum Elvíru og systur hennar Khosku og ég horfđi á hann međ stjörnur í augunum. Einfaldlega vegna ţess ađ á ađ líta var hann algjörlega eins og ''eđlilegur'' drengur. Örlítiđ óţekkur. Iđandi af löngun til lítilla óknytta. Augun skćr og logandi af kátínu. Andlitiđ skellihlćjandi yfir hundinum sem ekki náđi beininu og Elvíru sem elti systur sína alla leiđ upp á eftir eldhússkápana.

Var ţetta Ian? sagđi Bakarafrúin sem ég var ađ spjalla viđ í símann. Hún heyrđi hláturinn í drengnum.

Já sagđi ég, og rak kettina niđur af skápunum.

Vá, sagđi Bakarafrúin. Ţessi hlátur kom alveg neđan úr maga.

Og ţađ er máliđ. Hláturinn Ţess Einhverfa er svo innilegur og einlćgur. Eins og hann sjálfur. 

Nú eru allir sofnađir nema Unglingurinn og ég. En ég ćtla ađ skríđa undir hlýja sćng međ vanillute og glugga í bókina hans Ţráins Bertelssonar, sem sjálfur kallar sig lćriföđur minn. Mér er heiđur ađ ţví.

Sofiđ rótt börnin mín og dreymi ykkur fallega.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guđný

Flott uppsveifla hjá stráknum

Amtiđ 11.des. er komiđ í dagbókina. panta hér međ áritun.

Anna Guđný , 27.11.2008 kl. 23:48

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Oh, hvađ ţú átt gott ađ vera međ bókina hans Ţráins.  Ţarf ađ eignast hana.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2008 kl. 23:50

3 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Hvađ er ađ vera normal, viđ sem lifum á og í sýndarmennsku eđa ţau sem eru einlćg og hreinlynd ?

Góđa nótt.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 27.11.2008 kl. 23:52

4 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 28.11.2008 kl. 00:01

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góđa nótt Jóna mín - hlakka til ađ sjá ţig í nćstu viku....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.11.2008 kl. 00:18

6 Smámynd: Erna

Sćl Jóna, Nú rćđur gleđin ríkjum hjá mér!!!!!!!!!!!!!! Nú skríđ ég undan feldi og mćti á amtiđ Ég er búinn ađ kaupa bókina ţína, en ég hef ekki ţorađ ađ opna hana vegna ţess ađ ég er ekki viss um ađ ég fái bók í jólagjöf, og ef ţađ verđur ekki ţá á ég ţig til góđa. Hlakka til ađ hitta ţig Jóna mín

Erna, 28.11.2008 kl. 00:44

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

En gaman ađ lesa hversu kátur Ian er.  Og hvađ honum gengur vel.  Til hamingju međ drenginn ţinn

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 28.11.2008 kl. 02:39

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garđarsdóttir

Smá hugmynd sem ég sá hjá bloggara áđan, allir ađ lesa ţetta   http://mariataria.blog.is/blog/mariataria/entry/727776/#comment1964793   Allir ađ mćta  á mótmćlafundinn á laugardaginn, hitta ţessa konu og reka ţá sem mađur vill burt

Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 28.11.2008 kl. 02:58

9 Smámynd: Guđríđur Pétursdóttir

Gott ađ heyra ađ hann er glađur, vildi ađ ţú vćrir glađari..

Ég er alveg ađ fíla kuldann og veđriđ upp ađ vissu marki. Ég labba alltaf međ Flóka í leikskólann og sćki hann svo aftur og ţessi tími sem ég labba er alveg einstaklega nćs.. ţá sérstaklega ţegar ég er búin ađ fara međ hann í leikskólann og er ađ labba heim, ein..og ţađ er ennţá dimmt.

Svo líđur mér svo vel ţegar ég er skriđin upp á 4 hćđina og sest niđur.. líđur eins og ţađ hafi einhver nuddađ mig međ bláum ópal, ţvílíkt fersk

Guđríđur Pétursdóttir, 28.11.2008 kl. 09:31

10 Smámynd: Rut Sumarliđadóttir

Ég bíđ eftir Ţránni líka, vona ađ ég fái hana í jólagjöf. Strákurinn ţinn er yndi.

Rut Sumarliđadóttir, 28.11.2008 kl. 11:19

11 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Hrönn Sigurđardóttir, 28.11.2008 kl. 11:20

12 Smámynd: Unnur Fríđa Halldórsdóttir

Sćl var ađ byrja lesa um ykkur  í bókinni ţinni , til hamingju ađ hafa sett ţessa dagbók á prent, vel gert , gangi ykkur vel međ allt nú á ađventu

og öll skiltin og lesturinn , váá kv Unnur Fríđa

Unnur Fríđa Halldórsdóttir, 28.11.2008 kl. 12:12

13 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Eitthvađ svo ljúf og notaleg fćrsla. Gaman ađ heyra af dýrunum !! knús á Khosku krútt frá mér.  Eigiđ ljúfa helgi.

Ásdís Sigurđardóttir, 28.11.2008 kl. 14:36

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.11.2008 kl. 15:32

15 identicon

Góđa helgi kćra bloggvinkona!

LBH (IP-tala skráđ) 28.11.2008 kl. 18:24

16 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Hafđu ţađ sem best, Emma biđur ađ heilsa hundinum og köttunum og sendir ţeim andlitsţvott.

Kv Gleymmerei og Emma.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 28.11.2008 kl. 19:57

17 identicon

Hef ég lesiđ rétt ... verđur frú Jóna á Amtinu á Akureyri 11. desember??!!!  Ef svo er ţá hreinlega VERĐ ég ađ mćta!!  Er ţađ til ađ lesa upp úr bókinni eđa er von um áritun í leiđinni?  Bara ađ vita hvernig mađur á ađ undirbúa sig  

Vá ... mér líđur nćstum eins og ég sé ađ fara á mitt fyrsta stefnumót - ég er svo spennt ađ hitta gođiđ   Hlakka til ađ hitta ţig í eigin persónu!

Margrét L. Laxdal (IP-tala skráđ) 28.11.2008 kl. 21:23

18 identicon

Sé ađ lesa á m.a. úr bók ţinni á bókmenntakvöldi hérna á Dalvíkinni á ţriđjudagskvöldiđ kemur (2. des) ... fannst mjög ánćgjulegt ađ sjá ţína bóka ţarna á međal hinna   Sendi ţér hérna fréttina um kvöldiđ en ég tók ţetta af heimasíđu Dalvíkurbyggđar www.dalvik.is

Ţriđjudaginn 2. desember nćstkomandi verđur haldiđ bókmenntakvöld á veitingastađnum Viđ Höfnina en ţađ er Bókasafn Dalvíkur sem stendur fyrir ţessari uppákomu. Ţar munu heimamenn lesa úr nýútkomnum bókum sínum og annarra. Ţetta er ţriđja bókmenntakvöldiđ sem haldiđ hefur veriđ og hefur ađsókn fariđ vaxandi ár frá ári enda er ţetta mjög skemmtileg stund fyrir alla bókaunnendur. Ţađ er ţví um ađ gera ađ fjölmenna og eiga saman notalegt kvöld međ kaffi, piparkökum og kertaljósi.

Dagskrá:

Júlíus Júlíusson - Meistarinn og áhugamađurinn
Heiđrún Villa Friđriksdóttir - Gerđu besta vininn betri

Einnig verđur lesiđ upp úr eftirtölum bókum:

Gullastokkur gamlingjans - Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku
Vetrarsól - Auđur Jónsdóttir
Ég skal vera Grýla - Margrét Pála Ólafsdóttir
Sá einhverfi og viđ hin - Jóna Á. Gísladóttir
Ég hef nú sjaldan veriđ algild - Anna M. Guđmundsd. frá Hesteyri
Ég, ef mig skyldi kalla - Ţráinn Bertelsson

Margrét L. Laxdal (IP-tala skráđ) 28.11.2008 kl. 21:39

19 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Innlitskvitt og bros :)

Hólmgeir Karlsson, 28.11.2008 kl. 23:29

20 Smámynd: Sifjan

Ţađ verđur fjölmennt á Amtinu.... ég mćti pottţéttt !!! 

 Verđur bara frábćrt ađ "hitta" ţig.  

Sifjan, 29.11.2008 kl. 19:45

21 identicon

Bestu kveđjur!!

alva (IP-tala skráđ) 30.11.2008 kl. 01:50

22 Smámynd: Jens Guđ

Jens Guđ, 30.11.2008 kl. 03:02

23 Smámynd: Sigríđur Ţórarinsdóttir

Búin međ bókina ţína, hún er frábćr eins og ţú sjálf. Knús.

Sigríđur Ţórarinsdóttir, 30.11.2008 kl. 04:20

24 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

 Yndisleg fćrsla.. eins og venjulega.

P.S.
Ég er búinn ađ skrifa fćrslu ţar sem ţú ert ađalpersónan...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 30.11.2008 kl. 17:34

25 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

OO, hann Ian er ţvílíkt dásamlegur. Ég sem var sannfćrđ um ţađ eftir ađ hafa fariđ á Rain Man ađ einhverfir vćru óalandi og óferjandi. Svo kemur ţú međ ţennan snilling og allt fer á hvolf.

Helga Magnúsdóttir, 30.11.2008 kl. 23:12

26 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Jóna ţú verđur í bandi ef ţú hefur tíma....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.12.2008 kl. 00:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1639935

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband