Leita í fréttum mbl.is

Unglingurinn Daníel

 

Þegar við Bretinn byrjuðum að vera saman var ég 25 ára. Fannst ég háöldruð í den tid en var bara baby.

Ég var barnlaus. Bretinn átti einn dreng með fyrrverandi kærustunni sinni. Daginn áður en Bretinn og ég drógum okkur saman í fyrsta skipti (kysstumst! dónarnir ykkar) varð þessi litli drengur þriggja ára.

Barnið var bjútífúl. Eins og dúkka. Og hann var tortrygginn gagnvart mér. Hann Daníel litli Alexander. Hann kom sér ávallt fyrir á milli Bretans og mín í sófanum. Samt vorum við ekki að neinu kossaflensi fyrir framan hann. Ég sver 'ða.

Eftir að við Daníel náðum tengslum og hann vandist þessari stelpu sem virtist vera komin til að vera spurði hann okkur eitt sinn afhverju við byggjum ekki öll saman. Hann, pabbi hans, ég og mamma hans. Þá átti ég fá svör.

Næstu árin eyddum við Daníel mörgum helgum saman. Bara við tvö því Bretinn var alltaf að sinna einhverjum hljómsveitum í hljóðveri.

Ég ætla ekki að ljúga því að þetta hafi alltaf verið auðvelt. En eins og með allt annað í lífinu þá bæta góðu stundirnar upp hinar sem ekki eru eins góðar.

Á vissum tímapunkti í lífi Daníels fannst mér sem tengslin rofnuðu svolítið. Það var þegar Daníel hætti að nenna að gista. Fór að verða nógu gamall til að geta verið einn heima. Orðinn of stór til að nenna að koma til okkar bara vegna þess að mamma hans þurfti að fara eitthvað. Gott að halda sig í heimahverfinu, nálægt vinunum. Eða kannski fannst honum bara svolítið gott að vera aðeins einn. Ég veit það ekki, í sannleika sagt. Alfarið mín sök og Bretans. Hvorugt okkar nógu duglegt að taka upp símann og hvetja hann í stuttar heimsóknir.

Svo var ég svo heppin að mamma Daníels ákvað að setjast á skólabekk í öðru landi. Og þá flutti Unglingurinn til okkar. Ég veit að þetta er tímabundið. Ég veit að ég er bara með hann í láni. En ekkert getur tekið frá mér þann tíma sem við höfum fengið að hafa hann og kynnast honum á nýjum forsendum. Að ég tali nú ekki um tvíefld systkinatengslin, sem reyndar hafa alltaf verið góð.

Enginn er fullkominn og Unglingurinn ekki heldur. En gagnvart yngri systkinum sínum þá nálgast hann nú samt að vera það.

Ég eignaðist mín þrjú börn þrátt fyrir allt. Og í dag, 20. nóvember verður það elsta 18 ára. Til hamingju með afmælið elsku Daníel. Knús og kossar frá stjúpu.

Hér er ein af mínum uppáhalds myndum úr fjölskyldualbúminu:

NCJ og DCJ

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Til hamingju með daginn ljúfan og eigið þið góðan dag.

Rúna Guðfinnsdóttir, 20.11.2008 kl. 01:28

2 Smámynd: Sporðdrekinn

Fallegt. Til hamingju með strákinn!

Sporðdrekinn, 20.11.2008 kl. 03:16

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með strákinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2008 kl. 08:10

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

til hamingju med thennan myndarstrák

María Guðmundsdóttir, 20.11.2008 kl. 08:19

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Frábær mynd! Til hamingju með daginn

ps til hamingju líka með fimmtán ára kossaafmæli á morgun

Hrönn Sigurðardóttir, 20.11.2008 kl. 09:05

6 identicon

Til lukku með strákinn, kysstann frá okkur :)

Fríða Brussubína (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 09:17

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hjartanlega til hamingju með snáða.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.11.2008 kl. 09:54

8 identicon

Til hamingju með Daníel. Ég man einmitt eftir því hvað hann var ósáttur við mig fyrstu skiptin sem ég passaði hann, en svo var hann ljúfur sem lamb þegar hann loksins tók mig í sátt. Hugsa sér að það eru komin rúm 16 ár síðan og hann er orðinn að stórmyndarlegum dreng í dag :)

 Berðu til hans afmæliskveðjum frá mér.

Selma Kaldalóns

Gömul barnapía (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 10:01

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með strákinn. Glæsimenni sem hann er.

Helga Magnúsdóttir, 20.11.2008 kl. 10:15

10 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Elskulega kona... Innilega til hamingju með soninn.
Falleg frásögn

Linda Lea Bogadóttir, 20.11.2008 kl. 10:19

11 Smámynd: Ragnheiður

Innilegar hamingjuóskir, skil vel dálætið á myndinni. Hún er flott !

Ragnheiður , 20.11.2008 kl. 10:55

12 Smámynd: M

Falleg færsla Til hamingju með strákinn.

M, 20.11.2008 kl. 12:15

13 identicon

Til hamingju með daginn í dag!!!

Kkv. LBH

LBH (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 12:20

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Til hamingju með hann!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.11.2008 kl. 12:46

15 identicon

Til hamingju með strákinn, alveg yndisleg færsla, eins og alltaf!  

Hann er heppinn að eiga svona góða stjúpu, ég á einmitt besta stjúpa í heimi, hann er reyndar eiginlega ekkert stjúpi, hann hefur verið pabbi minn síðan ég var tveggja!

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 13:42

16 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

til lukku með´ann

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.11.2008 kl. 15:25

17 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Til hamingju með strákinn, flottir þarna á myndinni og þú flottust stjúpa!

(Ein úr stjúpmömmufélaginu)

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 20.11.2008 kl. 15:35

18 Smámynd: Helga skjol

Til hamingju með þennan flotta gaur

Helga skjol, 20.11.2008 kl. 15:42

19 Smámynd: Erna

Til hamingju með strákinn hann er flottur og verður, áður en þið vitið af búin að gera ykkur að ömmu og afa, þá stækkar þessi flotta fjölskylda. Góða helgi Jóna mín

Erna, 20.11.2008 kl. 15:59

20 Smámynd: Ómar Ingi

Til hamingju með drenginn og daginn

Ómar Ingi, 20.11.2008 kl. 16:37

21 Smámynd: Hulla Dan

Æ en fallegur.
Til hamingju með hann. Dásamleg mynd.

Hulla Dan, 20.11.2008 kl. 16:44

22 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Til hamingju með hann.

Sigríður Þórarinsdóttir, 20.11.2008 kl. 17:01

23 Smámynd: Helga Linnet

til hamingju með stóra prinsinn :)

Helga Linnet, 20.11.2008 kl. 18:10

24 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Flottur strákur

Til hamingju með daginn

Marta B Helgadóttir, 20.11.2008 kl. 18:43

25 Smámynd: Jens Guð

  Falleg færsla.  Til lukku með stjúpsoninn.

Jens Guð, 20.11.2008 kl. 20:29

26 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gratjúlera með guttann.  Ég er ekki frá því að þetta sé hið fullkommna kjarnafjölzkyldumynstur, enda það nákvæmilega sama & hjá mér.

Steingrímur Helgason, 20.11.2008 kl. 22:52

27 Smámynd: Karl Tómasson

Það er allt svo fallegt í kringum þig.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 20.11.2008 kl. 23:40

28 Smámynd: Heiða  Þórðar

Til hamingju með hann elskan

Heiða Þórðar, 21.11.2008 kl. 00:30

29 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Til hamingju með daginn! Megi framtíð hans vera björt og gæfan fylgja honum hvert ævispor.

Sigurlaug B. Gröndal, 21.11.2008 kl. 10:47

30 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Til hamingju með unglinginn

Bergdís Rósantsdóttir, 21.11.2008 kl. 10:48

31 Smámynd: Hugarfluga

Kannast við þessar stjúpmóðurtilfinningar. Til lukku með drenginn!

Hugarfluga, 21.11.2008 kl. 14:53

32 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Til hamingju með stjúpsoninn.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 21.11.2008 kl. 18:36

33 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Hjartanlega til hamingju!!!!

Bergljót Hreinsdóttir, 21.11.2008 kl. 21:26

34 identicon

Fékk tár í augun og brosti svo út að eyrum þegar ég sá myndina.

KBH

Katrín Brynja (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband