Leita í fréttum mbl.is

Áfram stelpur

 

Hvernig stendur á því að ráðamenn þjóðarinnar komast sífellt upp með að svara ekki spurningum. Eða kannski má frekar segja að það er engin röksemdarfærsla á bak við svörin.

Á meðan enginn blikkar auga við að tilkynna um 25% launahækkun forstjóra Landsspítalans þá þykja kröfur Ljósmæðra hlægilegar? Aðhlátursefni? Ég sé ekki fyrir mér að senda þurfi sjúklinga / sængurkonur heim þó forstjórann vanti í vinnu nokkra daga.

Er ekki eitthað bogið við forgangsröðunina?

Ég verð nú að segja að það fer um mig hálfgerður aulahrollur að sjá Árna og Ísólf Gylfa hlæja þarna stórkarlalega í réttunum. Áhyggjulausir og ánægðir með sig. En kannski er ég að misskilja þetta... kannski er þetta leið Árna til að fela vanmátt sinn og vangetu til að takast á við málið. Kannski er karlanginn alveg með hnút í maganum yfir þessu öllu saman og reynir að deyfa sársaukann með gúlsopa úr fleyg.

Myndbandið er að sjálfsögðu runnið undan rifjum Láru Hönnu sem er óþreytandi við að fylgja eftir málum og leggja lóð sitt á vogarskálarnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

heyr heyr

Hólmdís Hjartardóttir, 14.9.2008 kl. 16:22

2 Smámynd: Dísa Dóra

Hvað var aftur há launahækkunin sem ráðherrar fengu ekki alls fyrir svo löngu??  Þeir náttúrulega eru á svoddan lúsarlaunum að þeim veitir ekki af launahækkunum svosem

Dísa Dóra, 14.9.2008 kl. 17:15

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ráðherra er ekki í neinum tengslum við samfélagið, hann býr í allt öðrum heimi....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.9.2008 kl. 17:21

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Kallin er til skammar

En samantekt Láru Hönnu er auðvitað bara snilld!

Sporðdrekinn, 14.9.2008 kl. 18:02

5 Smámynd: Ómar Ingi

Heyr Heyr Heyr

Ómar Ingi, 14.9.2008 kl. 19:14

6 identicon

Þetta myndband er nu bara gargandi snild.   
Þessi ráðherra ætti hins vegar að taka pokan sinn, það er auðvita skelfilegt ef ljósmæður eru ekki með hærri laun en þetta. Auðvita stöndum við með ljósmæðrum, það er deginum ljósara.     Það má sko alveg hækka launin þeirra um meira en 25 %.   ÁFRAM STELPUR !!!

Ásta Lóa (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband