Leita í fréttum mbl.is

pirr pirr

 

Það er engin hemja hvað ég get verið pirruð. Það pirrast enginn meira en ég. En ég veit um eina sem pirrast jafn mikið og ég. Og þú veist hver þú ert. Devil

Pirringurinn hjá mér er líkamlegur. Ég finn hvernig allar taugar krullast upp í permó-ástand eins og þær hafi fengið andlegt raflost.

Klukkan 22:47 í kvöld að staðartíma kom Gelgjan til mín með nýju gallabuxurnar og sagði: mamma ertu til í að festa uppábrotin?

Og ég tuðaði og röflaði og tautaði og skammaðist yfir þessari alslæmu tímasetningu, þar sem öll helgin var að baki.

  • Afhverju hún hefði ekki beðið mig um þetta fyrr í dag (t.d. þegar ég þurfti nauðsynlega að leggja mig í 4 klst svo meðvirk var ég þreytu landsliðsins),
  • eða í gær (þegar ég var bissí við að fara út með Vidda Vitleysing, versla vegna tilvonandi kvöldmatargesta, elda matinn og svo taka á móti gestum)
  • eða á föstudaginn (þegar ég sveif á rauðbleiku skýi eftir sigur strákanna gegn Spánverjum og var ekki til viðtals í sigurvímunni)

Og eftir allt tuðið ákvað ég að hún skyldi sko fá að eyða jafnmiklum tíma í þetta og ég, svo ég lét hana standa upp á stól og vera í buxunum á meðan ég tyllti uppábrotunum með örfáum saumsporum.

En ég var pirruð. Pirruð yfir tímanum sem fór í þetta. Pirruð yfir nýtilkominni ellifjarsýninni sem gerði mér erfitt fyrir að þræða nálina. Og í hvert skipti sem ég stakk sjálfa mig í fingurna fann ég hvernig taugarnar á mér pirruðust alveg út í afró-krullur.

Og þar sem ég kraup við fætur dóttur minnar sem furðanlega ónæm fyrir skapvonskunni í mér, fann ég klapp á kollinn og hughreystandi rödd sagði: mamma þú ert flink að sauma.

Já finnst þér það sagði ég og stakk sjálfa mig í vísifingur.

Og þar sem Bretinn er bissí við að horfa á golf, þá létti ég á hjarta mínu við ykkur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 00:01

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Aha svo þú heldur að við hinar getum skilið þig, sameinast, pirrast líka, hjálpað, orðið meðvirkar, fundið til í puttunum, eða bara hlustað?

Biddu fyrir þér, þá erum við komnar í sömu aðstöðu og þú gagnvart gelgjunni.

Nei annars Jóna mín, ef þetta er ekki reynsluheimur kvenna þá vei ég ekki hvað? Knús.

Edda Agnarsdóttir, 25.8.2008 kl. 00:02

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Edda. Er það? Erum við allar svona pirraðar?

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Rebbý

verðum allar pirridípú af og til og njótum þess bara (svona til að hlægja að síðar)

Rebbý, 25.8.2008 kl. 00:30

6 Smámynd: Ívar Pálsson

Ef þig vantar útrás og líður eins og í sportbíl í botni en með handbrensuna á, er þá ekki ráð að athuga hvernig er hægt að losa um handbrensuna? Brunar bíllinn þá á vegg af því að maður veit ekki hvert á að stýra honum? Væri það þá vegfarendum og íbúum hverfisins að kenna?

Ívar Pálsson, 25.8.2008 kl. 00:33

7 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Gott að vita að þú ert mannleg eins og ég og allir hinir.

Elísabet Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 01:27

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Ég hef aldrei lent í svona pirringi bara öðruvísi.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.8.2008 kl. 01:36

9 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Híhí já það er nú bara þannig að við getum verið pirraðar og höfum alveg fullkomlega rétt til þess "yfirleitt"

Eigðu góðan pirrlausan dag á morgun skvís

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 25.8.2008 kl. 02:19

10 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Þekki þennan pirring alltof vel

Er meira segja búin að taka eitt svona pirringskast í morgun

Eigðu góðan og pirringslausan dag elskan

Anna Margrét Bragadóttir, 25.8.2008 kl. 08:11

11 Smámynd: Gulli litli

Þú hefur mína samúð algjörlega..

Gulli litli, 25.8.2008 kl. 08:40

12 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Stundum er lífið svona...algerlega óþolandi, allt verður manni að erfiði og pirringi.  Ert þú nokkuð ein um svona líðan?  Ég held ekki.

Rúna Guðfinnsdóttir, 25.8.2008 kl. 08:50

13 identicon

Þekki þetta ,en klappið á kollinn lagar allt

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 09:11

14 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Þekki tilfinninguna vel. Gangi þér vel að hemja krullurnar.

Þú átt frábæra dóttur

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 25.8.2008 kl. 09:15

15 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

þú ert flink að sauma

Dásamlegt!

Ég  pirrast allsekki á saumaskap

ég sauma bara ALLSEKKI!

KNÚS 

Guðrún Jóhannesdóttir, 25.8.2008 kl. 09:31

16 Smámynd: Gunna-Polly

velkomin í pirrhópinn

Gunna-Polly, 25.8.2008 kl. 09:55

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég fékk svona "pirringsköst" ca. 1 x í mánuði.  Þeim hefur fækkað með aldrinum.

Sigrún Jónsdóttir, 25.8.2008 kl. 11:27

18 Smámynd: M

Það ættu að vera til samtök lýkt og AA þar sem fólk kemur saman og tjáir sinn pirring. Losa draslið út

Hæ ég heiti..... og ég er pirruð

En jákvætt að heyra frá Sigrúnu, að með aldrinu minnkar pirringurinn.

M, 25.8.2008 kl. 12:13

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Mæli með ,,vefrænni tilfinningalosun" .. (I am not joking)

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.8.2008 kl. 14:31

20 Smámynd: Sporðdrekinn

Mér finnst nú ömurlegt að segja það en ég þekki þetta allt of vel. Stundum þegar að lífið er með pínulítið of mikið áreiti þá verða hin minnstu verk bara pirrandi. Ég tala ekki um þegar að börnin okkar sem eru svo ljúf og falleg sofandi þurfa að láta gera eitthvað fyrir sig á röngum tíma.

Ég hef fengið við svipaðar stundir:

"mamma þú ert svo góð"

"Ég elska þig mamma mín"

Guð einn veit hvað ég skammast mín mikið þá yfir að hafa látið minn pirring bitna á Ungunum mínum. En við erum bara mannlegar og þessi bjevítans hormóna flækjur tvisvar á mánuði, (já ég sagði tvisvar á mánuði, ég er ekkert skárri við egglos.) gera hlutina bara ekkert auðveldari.

Sporðdrekinn, 25.8.2008 kl. 14:32

21 Smámynd: Villi Asgeirsson

- Ég er soldið að pirrast líka. Ég var að kvikmynda um helgina frá sex að morgni til hálfátta að kveldi, báða dagana. Vikuna á undan var ég að vinna og kvikmynda frá morgni til kvölds. Litlu verkin hafa safnast upp. Ég var að vinna í dag frá sjö til tvö. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar. Ég myndi nota eftirmiðdagginn í að henda myndinni á teip svo ég gæti sent hana til Íslands á kvikmyndahátíðina. Ég ætlaði að kópera Uriah Heep diskana og senda hljómsveitinni. Ég ætlaði að fara með videovélina í viðgerð því hún talar ekki við tölvuna og hún þarf að vera komin í lag fyrir helgi. Svo ætlaði ég að slútta þessu með því að búa til reikning fyrir helgarvinnunni og senda.

- Hvað gerðist? Ég er rétt nýkominn inn úr dyrum þegar síminn hringir. Ég bara varð að kaupa helv. málninguna sem ég er búinn að vera á leiðinni að kaupa í þrjár vikur því það er að koma gott veður (kannski) og tengdó vill fara að mála gluggana sem eru að flagna. Liggur á þessu í dag, spurði ég. Já, þú hefur engan tíma á morgun og þú ert að vinna á miðvikudaginn og þá er komin helgi, því sem næst og pabbi vill mála í vikunni. Ég var að koma heim með slettur í dós, klukkan er orðin fimm og ég nenni ekki að gera neitt meira.

- Ó, eitt að lokum. Okkur vantar litla tröppu. Hún var á tilboði fyrir þúsara eða eitthvað. Ég átti að kaupa hana, en það var ekki auðvelt. Ég spurði hana hvort pabbi hennar, sem kominn er á eftirlaun, gæti ekki keypt hana og við borguðum honum svo. Nei, hann segir að þú hafir nógan tíma sjálfur. Af hverju segir hann það? Af því að hann kom tvisvar að mér í tölvunni um daginn. Í annað skiptið var ég að senda einhverjum reikning, í hitt skiptið að rembast við að fylla út eitthvert torskilið form frá skattinum. Af því ég var ekki "í vinnunni", var ég að gera ekkert. Nú er tröppudruslan uppseld og kemur ekki aftur.

- Ég er búinn. Vildi bara deila pirrinu.

Villi Asgeirsson, 25.8.2008 kl. 15:08

22 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 25.8.2008 kl. 16:26

23 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er nú ekkert með pirringinn, en veistu hvað það þýðir ef maður stingur sig í puttana við að laga flik???  það þýðir að margir eiga eftir að verða skotnir í viðkomandi þegar hún/hann er buxunum. Þú skalt hafa auga með gelgjunni þinni   Eyes  Eyes

Ásdís Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 16:59

24 Smámynd: Steingrímur Helgason

Rafræna andlega ruzlafatan virkar fínt !

Steingrímur Helgason, 25.8.2008 kl. 17:07

25 Smámynd: María Guðmundsdóttir

úbs...eitthvad kannast madur vid thetta... en sem betur fer eru fleiri svona.. 

María Guðmundsdóttir, 25.8.2008 kl. 18:00

26 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Heyrðu??? Ég var áðan að stytta nýju gallabuxurnar hans Snorra...það gekk illa þar sem faldurinn var þykkur.. nálin stoppaði alltaf og náði ekki í gegnum helvxxxx faldinn.... Ég var öskupirruð og fúl og enginn sagði að ég væri dugleg að sauma.Crying And Rubbing Eyes

Aftur á móti hafði ég steiktan silung í sítrónu í kvöldmat og fékk ég hrós fyrir það... þannig að ég er nokkuð sátt!  (Reyni að hafa kvöldmatinn um kl. 18:00...þá er svo mikið eftir af kvöldinu  )

Rúna Guðfinnsdóttir, 25.8.2008 kl. 18:34

27 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

tvennt sem er verra en að vera pirruð ... þegar einhver spyr "ertu eitthvað pirruð?" eða segir "láttu þetta bara ekki fara svona í taugarnar á þér" LÁTT ÞÚ EKKI FARA Í TAUGARNAR Á ÞÉR ÞEGAR ÉG SKÝT ÞIG MEÐ HAGLABYSSU JÁKVÆÐI FÁVITI !!!!!

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 25.8.2008 kl. 19:03

28 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Rebbý. Einmitt! það sem ég spyr mig sífellt að; afhverju get ég ekki hlegið að hlutunum á meðan þeir gerast í stað þess að sjá alltaf fyndnu hliðarnar eftirá?

Ívar. You lost me at handbremsa

Elísabet Sig. O sei sei já

Jóna. En pirringi þó...

Elísabet Sóley og sys. hef ekki aaaalveg sloppið í dag, en að mestu þó.

Gulli. Æi þakka þér fyrir

Birna Dís. Það gerði það vissulega

Ása Hildur. Þakka þér fyrir. Ég veit.. hún er gullmoli

Guðrún Jó. Það geri ég nú yfirleitt ekki heldur. Ekki nema krosssaum.

Gunna-Polly. Ó elskan mín ég hef tilheyrt honum í bráðum 40 ár

Sigrún. Því miður get ég sennilega ekki átt von á þessum úrbótum þar sem þetta gerist mun oftar en á tuttuguogeitthvað daga fresti

M. Þetta er góð hugmynd í sjálfur sér... en þó ekki. Jesús, pældu í 'ðí hvað maður kæmi neikvæður heim af slíkum fundi hahahaha

Brynja Dögg. Er sem betur fer nokkuð áhyggjulaus

Jóhanna. Hvað er það?

Spordreki. Þú hittir naglann á höfuðið; ljúf og falleg sofandi

Villi. hahahaha takk fyrir að deila þessu með okkur

Ommi minn. knús á þig líka

Ásdís. Þetta hafði ég ekki hugmynd um. En þarf ekki sá sem lagar flíkina að vera sá sem á hana til að þetta virki? Annars verð ég að loka Gelgjuna inni

Steingrímur. Bara nokkuð vel

María. Það er alltaf gott að heyra að maður sé ekki einn

Rúna. Skömmin hann Snorri

Ella Sigga. ARGH takk fyrir þetta. Ég sprakk úr hlátri

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 19:47

29 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

H-vítamínið getur gert kraftaverk :)

Hólmgeir Karlsson, 25.8.2008 kl. 19:48

30 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nei, Jóna mín, það er nefnilega ekki þannig.  Það er sá sem á flíkina sem hlýtur ástina, allavega augngotur, mamma sagði þetta alltaf þegar hún var að sauma á okkur systur, eða laga föt. Ég ég hef haldið þess við. 

Ásdís Sigurðardóttir, 25.8.2008 kl. 20:24

31 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hólmgeir. Er það til?

Ásdís. það er bara svona.... ég er búin að panta rimla fyrir gluggana hjá stelpuskottinu.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 21:21

32 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Wow ég á eina 11 ára gelgju - og ég held að þetta sé eitthvað sérstakt mömmupróf sem maður gengur í gegnum með þessar litlu/stóru persónur (bara á meðan ég skrifa þennan póst er búið að gala á mig 3x).  Og stundum er ég alveg við falla á prófinu - finnst mér. 

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 25.8.2008 kl. 21:51

33 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Lísa. nei nei... við fáum lélegar einkunnir inn á milli en oftast slefum við alveg í tíuna

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 21:54

34 identicon

Vá fékk þessa tilfinningu yfir mig þegar ég las bloggið þitt. Man þegar stelpurnar mínar komu korter fyrir jól eða árshátíð með frábærar hugmyndir að samkvæmiskjólum. Ekki hægt að finna nokkuð snið að þessum snilldar kjólum þeirra og vaðið á milli búða til að finna efni. Ég er loksins búin að læra að segja nei við svona á síðustu stundu verkefnum (væri örugglega annars komin á lokaða deild)

Helga (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 23:19

35 Smámynd: Bergur Thorberg

Ég var líka eitthvað þreyttur eftir sýningarbröltið og boltann um helgina og var eitthvað að pirrast út í táninginn á mínu heimili en þessi elska tók ekkert mark á mér, strauk mér um vangann og sagði: Svona gamli, róa sig, róa sig........ Ég laumaðist inn á baðherbergi og hvíslaði að sjálfum mér hvað ég væri heppinn að eiga svona yndislega dóttur sem hjálpaði pabba sínum eins og herforingi í 12 tíma á Menningarnótt. Örþreytt, nýkomin frá Írlandi eftir tveggja mánaða flakk. Barnalán. Það segi ég.

Bergur Thorberg, 25.8.2008 kl. 23:22

36 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ekki orð frá mér, en þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég er með strýpur.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 25.8.2008 kl. 23:25

37 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Helga. hehe einmitt þar sem ég held stundum að ég ætti að vera.

Bergur. Yndislegt! Barnalán er það besta, ekki satt.

Högni.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2008 kl. 23:42

38 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Man þá tíð er ég mætti til mömmu minnar með álíka fyrirspurn.  Síðar varð ég mamma sem fékk margar slíkar. Pirrrrr í pottinn en æðruleysið og meðvirknispróf-tal hafa reddað hahha

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 26.8.2008 kl. 00:49

39 identicon

Ég er búin að vera pirruð undanfarið... og greinilega líka frekar niðudregin eftir því sem fermingarbarnið á mínu heimili segir.  Hún var svona úber glaðlynd og jákvæð í dag.. dró mig með sér í bónus til að versla svo HÚN gæti farið að BAKA.. ekki baka ég allavega :=)  Svo var hún svona ægilega næs við sysir sína sem fékk að baka með henni... og það var ekki bakað ein tegund, nei nei það var bakað muffins, skinkuhorn og bangsabrauð. 

Eftir baksturinn settist hún niður hjá mömmu sinni (sem var að pirrast með einhverfa drengnum á heimilinu) og sagði.. finnst þér ekki gaman þegar ég er svona jákvæð og dugleg, þú ættir kannski að prófa það líka :=) 

Sif (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 01:20

40 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Fjóla. já ég get ímyndað mér að við höfum verið litlu skárri

Sif. hahahahaha sálrænt kjaftshögg frá dóttur þinni. En rosalega hefur hún verið afkastamikil í bakstrinum í gær.

Jón Arnar. Verum pirruð saman

Jóna Á. Gísladóttir, 26.8.2008 kl. 09:20

41 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég er að hlusta á Mamma Mia og er í gleði og sorgar vímu!  Gleymi allavega öllum saumskap á meðan.

Rúna Guðfinnsdóttir, 26.8.2008 kl. 14:27

42 identicon

Velkomin í hópinn, stundum hugsa ég; aumingjans börn að eiga mig að svona pirraða ein og ég get verið...samviskubit dauðans...en ég held að það sé eitthvað í loftinu..ég hef aldrei verið svona pirruð eins og þessa dagana....

alva (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 14:45

43 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.8.2008 kl. 16:54

44 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 19:17

45 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 26.8.2008 kl. 20:01

46 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég er svo pirruð að ég get ekki einu sinni kommentað á þitt pirraða pirringsblogg, pirraða piparkerling (fann ekkert annað orð á þig sem byrjar á p nema p*** og það má ekki segja...svo piparkerling ert þú..haha)

Brynja Hjaltadóttir, 26.8.2008 kl. 20:18

47 identicon

http://www.specialisterne.dk/

les stundum bloggid thitt og hef gaman af, og datt thvi i hug ad senda ther thennan link...kannski kemur hann ther uppur pirringnum

Rut (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 11:09

48 Smámynd: Sporðdrekinn

Sif: En yndisleg dúlla sem að þú átt!

Sporðdrekinn, 27.8.2008 kl. 17:20

49 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Já ég verð mikið oft svona hrikalega pirruð og skaptæp.. þá finnst mér eins og það sé teygja innan í mér sem er verið að teygja og teygja og er við það að slitna

ef hún slitnar fer ég yfirleitt að skæla..

Guðríður Pétursdóttir, 28.8.2008 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband