Leita í fréttum mbl.is

Er ad upplifa thetta sem thid kannist flest vid

 

Eg nenni ekki ad tengja mina tolvu til ad geta skrifad med islenskum stofum. Enda a thetta ad vera alveg svakalega stutt blogg.

Flestir sem eru giftir eda eru i sambud, eda bara their sem eiga stor-fjolskyldur, kannast vid fjolskyldu-pirringinn, hvort sem their vilja kannast vid thad eda ekki:  Aaarghhh mig langar ad kyrkja mommu/ommu/tengdo....

Eins og thid vitid flest er engin slik fjolskylda i kringum mig og Bretann a Klakanum og tvi upplifi eg thessi moment i gegnum adra. Well... I'm living it now folks. Biiig time. Getur drepid mig hversu mikid thessi fjolskylda tharf ad plana allan skapadan hlut. Plana plana plana. Svo endar med thvi ad haett er vid allt heila klabbid thvi thad er svo mikid spekulerad og planad ad thau plana yfir sig. Bokstaflega. 

Og vid Bretinn rullum augunum thar til okkur verkjar i thau og hlaegjum thangad til tarin renna.

A morgun er thad London, Gussi fraendi og Hairspray. Eg hlyt ad geta eytt adeins meiri peningum thar.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hairspry? vaá það hlýtur að vera gaman!

Ég þekki Breta ekkert en Danir eru pain in the ass í plani!

Edda Agnarsdóttir, 24.6.2008 kl. 21:08

2 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Stundum er bara ágætt að láta sig hverfa.  Forða sér frá þessum skipulagsfríkum og vera bara maður sjálfur, eða þið sjálf.  Þá er líka svo rosalega spennandi  og getur endað á ýmsa vegu.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 24.6.2008 kl. 21:11

3 Smámynd: Helga Björg

júbbs úbbs ég er svona planari og meira að segja á það til að plana llíka fyrir þá sem kæra sig ekkert um það eru bara einhvernveginn allt í einu dottnir inn í mitt plan , er samt stundum að reyna að slaka á í þessu vonandi kemur það one day , held samt að það sé meira atriði þegar maður býr á stað þar sem það getur tekið hálfann daginn bara að skreppa í búðina tala nú ekki ueithvað flóknara en það

Helga Björg, 24.6.2008 kl. 21:48

4 Smámynd: Hulla Dan

Elskan mín, kannast við þetta allt... Kyrkja,drepa.... Muhahhaha

Án gríns. Skemmtu þér kona og þið öll. Njóttu hverrar mínútu og gerðu það sem þig / ykkur lystir.

Endalaust af góðu notarlegu knúsi til ykkar inn í nóttina og inn í morgunndaginn.

Hulla Dan, 24.6.2008 kl. 21:52

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þoli ekki útúrplanaðar ferðir. Sá Hairspray í New York í fyrra og það var snilld. Góða skemmtun.

Helga Magnúsdóttir, 24.6.2008 kl. 22:04

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það á bara að tala lítið og láta vaða. Pælingar og plön skemma alla hluti og gera þá óspennandi.

Góða skemmtun..

Rúna Guðfinnsdóttir, 24.6.2008 kl. 22:32

7 Smámynd: Ómar Ingi

Have a nice one

Ómar Ingi, 24.6.2008 kl. 22:59

8 identicon

Ohh.. hvað ég öfunda þig. Hairspray myndin var æði. John Travolta frábær í hlutverki mömmunnar.  Ég væri sko til að sjá þetta live.  Góða skemmtun.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 23:01

9 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Æi það er svo gott að fara burtu annað slagið og á harspray sem er brandarafyrirsláttur ever.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 25.6.2008 kl. 03:38

10 Smámynd: Halla Rut

Draga sig í hlé og leifa þeim að ráða þessu ALVEG. Koma bara svo aftur heim og vera fegin að sjórinn skilur á milli.

Halla Rut , 25.6.2008 kl. 10:36

11 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Ég hef stundum sagt að það er stórlega vanmetin skemmtun að gera ekki neitt.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 25.6.2008 kl. 11:19

12 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

úff, þið eigið samúð mína alla.

sumir eru svo uppteknir við að plana framtíðina að þeir mega ekki vera að því að upplifa nútíðina.

Brjánn Guðjónsson, 25.6.2008 kl. 11:49

13 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir


Bæði ég og báðir mínir barnsfeður erum úr aðskildum fjölskyldum svo að ég kynnist fólki á persónubasis, sem er alveg fínt. Yndislegt fólk svona sitt í hvoru lagi, yrði það kannski ekki ef það væri allt saman komið ...með fullri virðingu!

Úff planfrík! Þú átt samúð mína alla! Plana yfir sig... ég elska þig! Þetta mun notað í framtíðinni!

Laufey Ólafsdóttir, 25.6.2008 kl. 11:56

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú átt alla mína samúð, jeræt.  Mátulegt á þig að fá að upplifa það sem við dauðlegir menn drögnumst um með allan ársins hring.

Lalalala og I love you.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.6.2008 kl. 11:56

15 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Úff... Hefur verið gerð fjárhagsáætlun fyrir þig, til að styðjast við í London?

Aðalheiður Ámundadóttir, 25.6.2008 kl. 13:20

16 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Peningar eru og verða minn Akkilesar-hæll    sad smiley goggle eyed and tongue hanging out animated gif

Rúna Guðfinnsdóttir, 25.6.2008 kl. 14:13

17 Smámynd: Hanna

Hafið það gott í fríinu ykkur :)  Sjálf var ég að koma úr fríi og sá spurningalistann frá því fyrr í mánuðinum.  Langar svo að svara honum að ég tek mér það bessaleyfi að svara hérna :)  Vonandi er það í lagi. 

1. ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? Ömmu minni

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? 1. júní á slysadeildinni af kvölum.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? Já, þegar ég vil. 

4. Uppáhaldskjötið er lambakjöt og kjúklingur. 

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? Þrjú.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? Já, ég myndi vilja það.

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ? Já, hún er góð með við rétt tækifæri.

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? Nei.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Kaffi og sígó.

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? Að sjálfsögðu!!!

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? Já. 

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Brynjuís.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ? Attitute og hvernig fólk talar um aðra.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ? Nota frekar húðlita og í ljósbrúnum tónum en frekar ljós, ljós, ljós bleikt en rautt.

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? Er of næg sjálfri mér.

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? Látinnar vinkonu minnar og BK, sálufélaga míns.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ? Já, það væri gaman. 

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? Svörtum gallabuxum og svörtum Puma skóm.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ? Núðlusúpa.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ? Ekki neitt. 

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? Blár.

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? Lyktin af ungabörnum.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? Dóttur mína.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ? Já, svo sannarlega líkar mér við Jónu þó svo ég þekki hana ekki persónulega. 

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? Horfi ekki á íþróttir.

26. ÞINN HÁRALITUR ? Dökkbrúnt. 

27. AUGNLITUR ÞINN ? Grænn. 

28. NOTARÐU LINSLUR ? Nei en stundum gleraugu.

29. UPPÁHALDSMATUR ? Mexíkóskur, ítalskur og íslenska lambið.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Góður endir.  Hryllingsmyndir eru tímasóun finnst mér.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? Mig minnir að hún heiti Holiday. 

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ? Fer eftir stemmingunni ef ég man þá rétt hvað deit er.

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Djúpsteiktur kanilís með súkkulaðisósu og þeyttum rjóma.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ? Hef ekki hugmynd.

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? Veit ekki.

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? Var að klára Saffraneldhúsið og hún er yndisleg.  Ástarsagan hans Einars Más, Rimlar hugans, bíður núna. 

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? Engin mynd, engin músarmotta, engin mús.

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? 27 dresses í flugvélinni á leiðinni heim. 

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ? Bæði.

40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? Colorado í USA. 

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? Traust og þolinmóð. 

42. HVAR FÆDDISTU ? Á gamla fæðingarheimilinu við Eiríksgötu. 

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ? Ég er forvitin um alla.

Hanna, 25.6.2008 kl. 15:03

18 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Thí hí....."gott með þig" eins og ein góð sagði....

Góða skemmtun að eyða....en...Hairspary????...what?????

Bergljót Hreinsdóttir, 25.6.2008 kl. 15:18

19 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hahaha...já endalaus pløn renna bara í sandinn fyrir rest..en skemmtid ykkur vel á Hairspray, eflaust alveg súper skemmtilegt

María Guðmundsdóttir, 25.6.2008 kl. 16:09

20 Smámynd: Jens Guð

  Fyrir nokkrum árum las ég í ensku tímariti upptalningu á sérkennum hinna ýmsu þjóða.  Þar var nefnt að Íslendingar plani aldrei neitt fram í tímann.  Ekki einu sinni sumarfríið sitt. 

  Ensk kona sagði mér að á hennar æskuheimili hafi sumarfrí meðal annars verið notuð til að plana og skipuleggja næsta sumarfrí.

Jens Guð, 25.6.2008 kl. 20:06

21 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Njóttu bara ferðarinnar góða skemmtun.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 25.6.2008 kl. 20:43

22 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Sumt fólk þarf að plana sig og aðra gjörsamlega út úr samfélaginu.

Tökum ekki þátt í því, best að plana ekki neitt, þá er hver dagur ævintýri.

Góða skemmtun í fríinu þínu.

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 26.6.2008 kl. 00:00

23 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsKvitterí kvitt. Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 26.6.2008 kl. 00:58

24 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Ef það er planað of mikið er nánast bókað að maður verður fyrir vonbrigðum.. það stenst aldrei allt sem er planað.. fyrir mig er nóg að vita hvert ég er að fara.. hitt kemur í ljós seinna.. eða svona nánast

Guðríður Pétursdóttir, 26.6.2008 kl. 03:20

25 Smámynd: Himmalingur

Kæra Jóna:Mér finnst bara nokkuð gaman að lesa þetta svona!Kveðja:HIMMI

Himmalingur, 26.6.2008 kl. 14:30

26 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtu þér vel dúllan mín og leiddu skipulagið hjá þér, ég er sem betur fer búin að læra að skipuleggja ekki í þaula, líður miklu betur síðan.  Komdu heil heim.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 18:20

27 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góða skemmtun í fríinu  

Marta B Helgadóttir, 27.6.2008 kl. 11:54

28 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.6.2008 kl. 20:26

29 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég lifi líka langt frá fjölskyldunni minni, og líka tengdó, en fæ skammtinn þegar ég fer til íslands, er alltaf útkeyrð á eftir !!!

Kærleikur til þín og þinna

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.6.2008 kl. 11:03

30 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

iss plana..ég bara dembi mér í hlutinn alveg 1-2og10 .......en renn oftast á rassinn út af fljótfærni og ætla að plana næst..sem ég geri.......NOT.....

hinn gullni meðalvegur er lang bestur í þessu öllu saman 

Ásta Björk Hermannsdóttir, 28.6.2008 kl. 15:53

31 identicon

Ég sá Hairspray í London í nóvember, það var mjög skemmtilegt.

Sigga (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1639935

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband