Leita í fréttum mbl.is

Þetta er ekki mín saga sko... enda ekki orðin fertug

Góð saga, svona á föstudegi: 

 

Hér er saga einnar sem er nýlega orðin 40 ára:

Þegar ég var 16, vonaðist ég til að einhvern daginn myndi ég eignast kærasta.

Þegar ég var orðin 18 eignaðist ég kærasta, en það var engin ástríða.

Svo ég ákvað að finna mér ástríðufullan náunga með tilfinningu fyrir lífinu og tilverunni.

Á háskólaárunum var ég með ástríðufullum strák, en hann var of tilfinningasamur. Allt var neyðarástand í hans augum. Hann grét og hótaði að drepa sig.

Ég fann fljótlega að mig vantaði mann sem væri traustur og jarðbundinn.

Loks, þegar ég var orðin 25 hitti ég mjög jarðbundinn mann, en hann var leiðinlegur. Hann var algjörlega útreiknanlegur og varð aldrei spenntur yfir einu eða neinu.

Lífið varð svo leiðinlegt að ég ákvað að reyna að finna mér mann sem að væri spennandi.

Þegar ég var 28 fann ég mjög spennandi gaur, en ég gat engan veginn haldið í við hann. Hann rauk úr einu í annað og gat aldrei verið lengi á sama stað eða verið lengi með sömu áhugamálin. Hann framkvæmdi allt sem honum datt í hug, hvort sem það var hættulegt eða fífldjarft og daðraði við allt sem hreyfðist. Hann var skemmtilegur en áttavilltur.

Þannig að ég ákvað að reyna að finna mann með metnað.

Þegar ég var orðin 31 fann ég loksins gáfaðan mann með metnað. Hann var með fæturna á jörðinni og við giftum okkur. Hann var svo metnaðarfullur að hann skildi við mig, hirti allt sem ég átti og stakk af með bestu vinkonu minni.

Núna er ég 43 og er að leita að kalli með stórt typpi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Halló Hafnarfjörður, hvað ég er búin að sjá þessa víða.  En það kemur ekki að sök, hún er fyndin.

Lalalalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.6.2008 kl. 15:31

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

var með hana fyrr í vikunni, en góð.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.6.2008 kl. 18:06

3 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

já snild

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 6.6.2008 kl. 18:40

4 Smámynd: Hulla Dan

Hehehehe

Hulla Dan, 6.6.2008 kl. 19:29

5 Smámynd: Sporðdrekinn

43 ára er maður náttúrulega orðin reynslunni ríkari og veit hvað skiptir máli í lífinu

Neih... segi bara svona

Sporðdrekinn, 7.6.2008 kl. 02:35

6 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Einmitt! Allt er best í sínum fullkomna einfalleika. Best að sleppa öllu kjaftæði og leita að því sem gagnast best

Laufey Ólafsdóttir, 7.6.2008 kl. 08:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband