Leita í fréttum mbl.is

Ekki það að ég hafi nokkurn áhuga á fótbolta...

 

...en verð að óska Bretanum innilega til hamingju. Hann er staddur úti í bæ einhvers staðar með fleiri köllum og ég efast ekki um það eitt andartak að tárin streyma í stríðum straumum hjá þeim öllum. Gleðitár alltso.

Svo eru fleiri naglar sem ég þekki sem eru grátandi núna... af mismunandi ástæðum þó. Og er ég með vinnufélaga mína í huga.

Einn mann veit ég sem var gjörsamlega óþolandi í vinnunni í dag og fékk ég leyfi hjá konunni hans til að berja hann. Hann fann svona fótbolta-áhorfenda-klið á netinu og spilaði á fúll blast í dag. Var að gera mig vitlausa. Þessi maður mun mæta í United bolnum sínum næstu daga, eða þar til hann fer að lykta.

Annan mann veit ég sem mun ekki mæta í vinnupartýið hér á föstudagskvöldið því hann veit að hann verður hafður að háði og spotti allt kvöldið. Lagður í einelti. Fyrir að vera Chelsea-maður.

Jón minn þetta er allt í lagi. Þér er óhætt að koma. Ég skal passa þig.

Unglingurinn unir glaður við sitt á efri hæðinni. Búinn að öskra sig hásann yfir leiknum en sönglar nú inn í herbergi.

Já það má segja að mér létti yfir úrslitunum. Ekki það að ég hafi nokkurn áhuga á fótbolta.. það bara hefði orðið óþolandi ástand að búa við, bæði hér heima og í vinnunni, ef þetta hefði farið á hinn veginn.


mbl.is Man. Utd Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

hvað heldurðu að þú getir passað hann jón ... ertu ekki alltaf svo full??

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:18

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe jú blindfull. Leyfðu mér að lifa í sjálfsblekkingunni

Jóna Á. Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 22:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jájá, alltaf í boltanum en heyrðu hvernig væri að svara meilinu frá mér addna?

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2008 kl. 22:23

4 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég var að gleðja mig yfir því að vera í vinnunni svo kallinn gæti horft einn á boltann heima. En þá eru vinnufélagarnir búnir að vera að ganga af göflunum, æpandi og gólandi og eru nú að róa sig niður til að geta yfirhöfuð skrifað um dýrðina.

Helga Magnúsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:34

5 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Þó ég sé nú EKKI United kona þá var þessi leikur HEVÍ og tók verulega á allar taugar...endaði með bráðabana og látum...úff!!

EF maður er boltafrík þá ER maður húkkt...svo ég skil þennan í United treyjunni....myndi hiklaust skarta Púlaratreyju í nokkra daga við sama tilefni....NEMA ég myndi þvo hana á kvöldin....he he...

En passaðu vel upp á greyið hann Jón, því ef hann er eins og nafni hans Terry, MUN hann eflaust skæla í partýinu hjá þér......

...held það blundi pínu boltafrík í þér.....ertu ekki annars í appelsínugula hverfinu????

Bergljót Hreinsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:46

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný. Takk fyrir spjallið hlýddu mér svo kona

Helga. I know what you mean

Bergljót. Jú ég er í appelsínugula hverfinu. Ef það blundar í mér boltafrík þá liggur það frík  í kóma

Jóna Á. Gísladóttir, 21.5.2008 kl. 22:49

7 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það er blendið á mínu heimili, rafvirkinn í skýjunum en gulldrengurinn missti nokkur tár niður kinnar sínar og neitar að fara í skólann á morgun.

Kannski Jón vilji hitta hann

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 21.5.2008 kl. 22:59

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég á einn strák af fjórum sem tekur fótboltann virkilega alvarlega... nei bíddu ég gleymdi þessum í DK hann er víst galinn líka í þetta - allavega þessi hér heima er með rólegri mönnum en er bara breyttur maður í kvöld! Hamingjan svo mikil að hann er farin út að borða - halda sko rækilega upp á þetta dansar og syngur, hef bara aldrei séð hann svona!

Hm það er gaman af svona breytingum!

Edda Agnarsdóttir, 21.5.2008 kl. 23:13

9 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þetta gat aldrei farið á hinn veginn, til þess hefðu Tjelsýmenn þurft að vera betri enn MUmenn.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 21.5.2008 kl. 23:45

10 Smámynd: Þórbergur Torfason

Óskaðu "þínum"  til hamingju. Hann hlýtur að hafa unnið eða hvað?

Þórbergur Torfason, 21.5.2008 kl. 23:50

11 Smámynd: Ómar Ingi

Jóna við þurfum að fara detta í það , þú ert svo virk

Ómar Ingi, 22.5.2008 kl. 00:46

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 22.5.2008 kl. 00:55

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

ole ole ole, þurfti ég að hlusta á eftir leikinn þegar aðdáendur Manchester united komu á barinn hjá mér og lætin á Laugaveginum voru eins og við Íslendingar hefðum orðið heimsmeistarar í einhverju   ps.  Ég þoli ekki fótbolta!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.5.2008 kl. 02:24

14 Smámynd: Linda litla

Það fór a.m.k. ekki fram h já mér að það væri leikur í gangi, ég hélt að loftið í íbúðinni myndi hrynja. Fagnaðarlætin voru þvílík í íbúðinni fyrir ofan..... EN var það ekki vitað að MU myndi taka þetta ???

Linda litla, 22.5.2008 kl. 08:23

15 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Fótbolti er hjartans mál. En er ekki furðulegt að karlmenn geti leyft sér slíka ástríðu gagnvart hópi karla sem rífst um eina leðurtuðru í um það bil klukkutíma meðan þeir þurfa að vera moðvolgir gagnvart nánast flestu öðru sem varðar tilfinningar?

Steingerður Steinarsdóttir, 22.5.2008 kl. 10:27

16 identicon

Ég var að missa mig yfir þessum leik þótt ég hafi yfirleitt ekki gaman af fótbolta. En sonur minn og litli bróðir fengu óvænt miða á leikinn á föstudaginn sl. og skelltu sér til Moskvu. Ég  var með þeim þar í hjartanu.

Sonurinn hefur verið MU aðdáandi frá því hann var pínulítill og þessi leikur og allt í kringum hann var "a dream come true" fyrir strákinn. Hann gisti meira að segja á sama hóteli og liðið og náði stuttu spjalli og mynd af Alex Fergusson.

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 11:09

17 identicon

Fótboltafærsla á síðunni hennar Jónu!!!!!!!!  Gerist ekki krúttlegra

Og af því að þú spurðir á blogginu mínu þá fannst ég eftir dúk og disk.   

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 11:13

18 Smámynd: Anna Margrét Bragadóttir

Þetta var ógó spennandi leikur,,gat varla horft þegar bráðabaninn var.

Svo vann liðið mitt,,sem gerði þetta miklu skemmtilegra ;)

Svo er að fylgjast með evrovison í kvöld og vona að ísland komist í gegnum síjuna

Anna Margrét Bragadóttir, 22.5.2008 kl. 17:23

19 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Já tengdasonurinn er svo sæll að ég held að brosið sé fast á honum.

Eyrún Gísladóttir, 22.5.2008 kl. 19:40

20 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég sat nú á rúmstokknum og kærastinn minn á hinum enda rúmstokksins, á meðan vítaspyrnan var! Svo þegar lokamarkið kom stökk ég upp öskrandi af fögnuði..

Úff hvað lífið er ljúft á sumum tímapunktum!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.5.2008 kl. 22:59

21 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég þekki engann fótbolta aðdáanda,ekki þannig að það hefur áhrif á mitt líf ef einhverjum gengur illa eða vel eða þannig

ég hata nefninlega fótbolta skilurðu...

Guðríður Pétursdóttir, 22.5.2008 kl. 23:25

22 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 15:48

23 Smámynd: Lovísa

Innlitskvitt

Góða helgi

Lovísa , 24.5.2008 kl. 11:37

24 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hér var sko allt BRJÁLAD thetta kvøld...og ég hálfskammadist min..var med gest og kallarnir voru algerlega stjórnlausir inní stofu  en endadi med ad vid vorum farnar ad kikja lika..af einskærri forvitni yfir hvad gengi á i leiknum...en ég reyndar elska fótbolta sjálf svo ég kvarta ekki undan glápi á thá  ithrótt

María Guðmundsdóttir, 24.5.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband