Leita í fréttum mbl.is

Töfralausnin fundin?

 

Ég held ég hafi dottið niður á töfralausn í gær. Á vansæld Þess Einhverfa þegar breytt er út af venjulegri rútínu.

Mér var búið að hálfkvíða fyrir mánudeginum því það er mögnuð vika framundan hjá drengnum og ekki seinna vænna að kynna dagskrána fyrir honum.

Mér datt skyndilega í hug að setja upp vikuplanið í Excel í tölvunni hér heima. Hafa það skriflegt frekar en myndrænt. Skýrt og skorinort.

Þegar ég var sátt við niðurstöðuna, mundu ég skyndilega eftir litunum á dögunum. Í Öskjuhlíðaskóla læra krakkarnir meðan annars að þekkja vikudagana eftir litum. Sá Einhverfi var mjög fljótur að tileinka sér það strax í fyrsta bekk. Hver vikudagur hefur sinn lit. Ég ákvað að merkja hvern dag með sínum lit.

Svona lítur þetta út:

 

MánudagurÞriðjudagurMiðvikudagurFimmtudagurFöstudagurLaugardagurSunnudagur
19.maí20.maí21.maí22.maí23.maí24.maí25.maí
       
RútaRútaRútaRútaRútaMamma kemur Mamma og Ian
SkóliSkóliskóliskóliskólií sveitinafara í bílinn
VesturhlíðVesturhlíðVesturhlíðVesturhlíðVesturhlíð og heim
rútarútarútarútaFríða sækir Ianmamma lúllar 
heimheimHólabergHólabergí bílinn með Ian í sveitinni 
    í sveitina  
       

 

Svo kallaði ég á stráksa sem settist í fangið á mér fyrir framan tölvuskjáinn. Ég sagði ekki eitt einasta orð en fylgdist með honum renna augunum yfir handbragðið.

Hann virti skjáinn nokkuð lengi fyrir sér, stóð svo upp og gekk í burtu. Ég varð svolítið hissa en gerði ráð fyrir því að hann hefði ekki skilið það sem hann var að horfa á. Svo ég kallaði á hann aftur og í þetta skiptið las ég yfir hvern dag fyrir sig og fylgdi línunum með fingrinum. Hann horfði þegjandi á en myndaði orðið ''Hólaberg'' með vörunum.  Fyrir þá sem ekki vita þá bregst krakkinn venjulega vægast sagt illa við því orði, sem og öllum öðrum tilkynningum um breytta dagskrá.

Að lestri loknum, stóð hann upp, fór upp í herbergið sitt og stuttu síðar heyrði ég hann syngja um fullorðna fólkið sem er svo skrítið og er alltaf að skamma mann.

Ég var enn opinmynnt af undrun þegar Bretinn kom heim.

Ég krosslagði líka fingur þegar drengurinn byrjaði að þylja vikudagskránna orðrétt frá efri hæðinni. Beið eftir kastinu. Sem aldrei kom.

En hann þuldi svo fjandans dagskránna allt að því stanslaust í klukkustund. Og svo byrjaði hann að stríða mér með því að fara rangt með hana og hló eins og vitleysingur þegar ég leiðrétti hann.

Ég vona að ég sé dottin niður á töfralausnina á mesta vandamálinu í umgengni við snúllann minn. Hvort það eru stafir í stað teikninga, skjár í stað pappírs eða litirnir... ég veit það ekki. En puttarnir verða krosslagðir þar til þetta tiltekna vikuplan rennur sitt skeið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Nei vá ! Alveg magnað. Hann virðist sætta sig við þetta ef hann les það svona í réttum farvegi ?

Sá er skemmtilegur og kemur sífellt á óvart.

Æ LOV IT

Ragnheiður , 20.5.2008 kl. 00:35

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ragga. Kannski fékk hann nóg af lélegum teikningum móðurinnar . Ég er enn að bíða eftir kastinu. This is almoust too good to be true, you know.

Jóna Á. Gísladóttir, 20.5.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Andrea

Flott plan - og enn flottara ef það virkar

Andrea, 20.5.2008 kl. 00:46

4 Smámynd: Loopman

Þessi einhverfu einstaklingar læra jafnvel oftar en ekki að þekkja orð frekar en myndir eða liti. Það er því miður allt of lítið notað hér á landi að kenna þeim orð, heldur er margir fastir í myndum og orðum, og átta sig ekki á því að það er orðið en ekki myndin sem skiptir máli. Það var mín reynsla og kollega minna þegar ég vann ég með einhverfum börnum.

Loopman, 20.5.2008 kl. 01:15

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Vonandi er þetta lausn....kveðja frá frænku einhverfs drengs

Hólmdís Hjartardóttir, 20.5.2008 kl. 02:53

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Loopman er orðinn ráðgjafi þinn

Hólmdís Hjartardóttir, 20.5.2008 kl. 02:55

7 Smámynd: Hulla Dan

Þú ert snillingur

Eigðu góðan dag.

Hulla Dan, 20.5.2008 kl. 03:51

8 identicon

Sæl.

Þrælmögnuð frásögn.já það er svo margt sem við hin eigum eftir ÓLÆRT.

Gangi ykkur sem best.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 05:25

9 Smámynd: Linda litla

Frábært... vonandi þarftu bara að bíða endalaust, kannski kemur ekkert kast

Hafðu það gott Jóna mín.

Linda litla, 20.5.2008 kl. 08:12

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Góð hugmynd  Ef hann væri ekki sáttur, þá kæmi það strax fram, er það ekki??   Kveðjur..

Rúna Guðfinnsdóttir, 20.5.2008 kl. 08:42

11 Smámynd: Helga Linnet

Þetta merkir að drengurinn veit miklu meira í sinn koll en gert er ráð fyrir

Frábært ef þetta virkar svona. Vinkona mín gerir þetta nákvæmlega svona fyrir sína dóttur.

Ég hefði þurft að gera þetta svona líka fyrir mína stelpu....en ég hafði ekki vit á því. Tók bara á því þegar kastið kom! (hún er ekki einhverf...en með verulega þroskaskerðingu með tilheyrandi vandamálum)

Helga Linnet, 20.5.2008 kl. 10:03

12 identicon

Sæl Jóna vildi bara kvitta fyrir mig les oft bloggið þitt finnst mjög forvitnilegur þessi heimur sem einhverfir lifa í, þekki aðeins til maðurinn minn vann með einum snilling sem er einhverfur og heillaði mann alveg uppúr skónum vonandi gengur vel með vikuplanið.

Hlín (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 10:22

13 Smámynd: krossgata

Alltaf er Ian að koma á óvart og snúa á hana mömmu sína  Hann er húmoristi inn við beinið.

krossgata, 20.5.2008 kl. 12:32

14 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ókey, er á meðan er, nú er bara að bíða og sjá hvernig úr rætist.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 20.5.2008 kl. 12:51

15 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.5.2008 kl. 12:54

16 Smámynd: Anna Gísladóttir

Publisher og Exel eru algjör snilld

Hvað er netfangið þitt ?  Mig langar svo að senda þér sýnishorn af því sem að ég geri í publisher .....

Anna Gísladóttir, 20.5.2008 kl. 12:59

17 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Við erum búinn að nota svona vikuplan fyrir Róbert okkar í nokkur ár og það virkar ótrúlega vel. Ég man eftir því þegar Róbert sá þetta í fyrsta skiptið og skildi hvað vika var... æðislegt.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.5.2008 kl. 13:53

18 Smámynd: Ómar Ingi

Sástu þennan snilling í fréttunum í gær

http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=&programID=d93d6ddc-f3df-4c27-90e2-28d49738f306&mediaSourceID=a7709a86-6c59-4658-8ba8-bf2b04009132&mediaClipID=e81b764b-c338-4aea-b057-2a3290954f56

 

Hann var í skóla með Inga mínum og ég held að hann hafi þarna talað meira en öll árin sem hann var í skólanum.

 

Snillingur

Ómar Ingi, 20.5.2008 kl. 17:01

19 Smámynd: Ragnheiður

Kom kastið ?

Ragnheiður , 20.5.2008 kl. 19:17

20 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er snilldarhugmynd, vonandi er þetta ekki bara frestur á kasti heldur varanleg lausn.

Helga Magnúsdóttir, 20.5.2008 kl. 21:17

21 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Flott tilraun og vonandi skotheld lausn.....

Bergljót Hreinsdóttir, 20.5.2008 kl. 22:41

22 Smámynd: Ásgerður

Frábær hugmynd,,,yndislegur strákur sem þú átt

Þetta er eitthvað sem ég þyrfti að gera fyrir minn,,,kannski ekki alveg svona,,en þetta gefur mér hugmynd,,takk fyrir það

Ásgerður , 21.5.2008 kl. 14:17

23 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Vona að þetta gangi hjá ykkur, kveðja frá mömmu sem á einhverfann son

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 21.5.2008 kl. 20:28

24 Smámynd: Steingrímur Helgason

Fullkomið í einfaldleika sínum & skýrri framsetníngu.  Drengurinn er náttúrlega móttækilegri á hans 'heimavelli' þarna, eins & þú brillaðir á að detta niður á.

Sko stelpuna skýru.

Steingrímur Helgason, 21.5.2008 kl. 22:20

25 identicon

Innilega til hamingju með þennan auðvelda og einfalda lausn til að kynna fyrir Ian breytingar á dagskráinn  ! Þú ert snilling  !

DORIS (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband