Leita í fréttum mbl.is

Ég hringi með rassinum

 

Þið megið ekki halda að ég sé kominn með einhvers konar rassa-blæti (í ljósi síðustu færslu), en ég komst að því í kvöld að ég er með sérstaklega vel lagaðan kúlurass.

Við mæðgur fórum á bekkjarkvöld í skólanum hjá Gelgjunni í kvöld, þar sem hver fjölskylda eða foreldri kom með mat á sameiginlegt hlaðborð.

Ég borðaði yfir mig af alls konar gúmmulaði.. Blandaði saman réttum sem mér hefði annars aldrei dottið í hug að setja í samhengi við hvorn annan, hvað þá að troða þeim saman á einn og sama gaffalinn.

Okkar framlag voru svenskar fríkadillur (munið.. ég keypti tvo poka í IKEA), súrsæt sósa úr krukku(m) og hrísgrjón frá Tilda (þessi á dökkbláu pökkunum).

Ekki kláraðist sænsku fríkadillurnar né hrísgrjónin og ég var því með jafnfullar hendur þegar ég fór, og þegar ég kom. Ég bað því Gelgjuna um að halda á símanum mínum á meðan við gengjum út í bíl.

Þegar heim kom uppgötvaði ég að ég var ekki með símann svo ég spurði Gelgjuna hvar hann væri. Hún sagðist hafa skutlað honum í framsætið á bílnum. Ég fann símann í bílstjórasætinu og sá þá að það voru 4 missed calls. Mér til mikillar furðu voru þrjú þeirra frá Fríðu Brussubínu. Og þar sem Fríða er frekar róleg manneskja að upplagi og sein til að panikka þá panikkaði ég. Afar ólíkt henni að hringja þrisvar sinnum. Venjulega myndi hún bara bíða eftir að ég hringdi til baka. Ég var því sannfærð um að eitthvað hræðilegt hefði komið fyrir. Svo ég hringdi í hana.

Hæ, sagði ég æst og andstutt

Hæ elskan, sagði Fríða glaðlega

Er allt í lagi, sagði ég  taugaveikluð

Já já sagði Fríða jafnglaðlega. Þú varst bara alltaf að hringja í mig svo ég hringdi til baka. Til að biðja þig að hætta að hringja. Gerði ráð fyrir að þetta væri óvart.

Ha? hringdi ég í þig, sagði ég rugluð.

Svo skildi ég hvers kyns var. Gelgjan skutlaði sem sagt símanum undir rassinn á mér. Fríða er á speed dial nr 5. Og á leiðinni frá skólanum og heim, tókst mér að hringja þrisvar sinnum í hana.

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að rassinn á mér er ekki bara stinnur, heldur er hann fullkomlega ávalur. Hvernig getur maður annars ýtt á nákvæmlega miðju gsm síma þrisvar sinnum í röð? Styrktaræfingar... who needs them!

arse

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Flott!!! Ekki er ég með svona stinnan rass. Ég hringdi einu sinni með rassinum..en bara einu sinni í eitt númer...og fékk skammir fyrir...

Rúna Guðfinnsdóttir, 11.3.2008 kl. 23:13

2 identicon

He, he, geri aðrir betur  !!

Doris (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 23:13

3 Smámynd: Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir

Þetta er örugglega það fyndnasta sem ég hef lesið í langan tíma.  Já, þú ert svo sannarlega mjjööög fjölhæf kona.

En......er ekki titrari á símanum þínum (hehehe)?  Hefði verið doltið næs.

Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir, 11.3.2008 kl. 23:18

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jóna I love you!!!!!!!!!!!   Ég er búin að vera í svona pirrukasti í dag en núna get ég farið róleg að sofa.

Ía Jóhannsdóttir, 11.3.2008 kl. 23:21

5 identicon

Drepfyndin - eins og venjulega

Anna Lilja Torfadóttir (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 23:26

6 identicon

Hahahaha  Í hvaða líkamsræktarstöð eru svona kúlurassar framleiddir? Það væri gaman að kíkja þangað - (fyrir þá sem eru veikir fyrir svoleiðis).  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 11.3.2008 kl. 23:40

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Rúnar fékkstu skammir fyrir að hringja með rassinum eða bara fyrir að hringja svona almennt?

Olla. Ég ætla að muna að stilla á titrarann næst

Ía mín. Ég vona að ég hafi ekki svæft þig úr leiðindum.

Anna Lilja. Dóttir mín vill fara í Vindáshlíð í sumar. Ég ætla með henni svei mér þá.

Anna mín. Á skrifstofustól á skrifstofu Icelandair Cargo.

Jóna Á. Gísladóttir, 11.3.2008 kl. 23:43

8 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Þú ert óborganleg að vanda, he he ...  ...  Hvað ætli gerðist ef þú sætir á fartölvunni nokkra stund með bloggið opið  ....

Hólmgeir Karlsson, 11.3.2008 kl. 23:44

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hólmgeir. Nú er ég í kasti . Já.. það gæti orðið fróðleg útkoma. Prófa það einhvern daginn

Jóna Á. Gísladóttir, 11.3.2008 kl. 23:44

10 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Hahah þú ert sko með FLOTTASTA rassinn !!! ekki spurningin. En hvað ég væri til í rassablogg frá þér

Sigrún Friðriksdóttir, 11.3.2008 kl. 23:52

11 Smámynd: Brynja skordal

Hahaha munur að vera með Hringja vöfðan á réttum stað á Rassinum

Brynja skordal, 12.3.2008 kl. 00:04

12 Smámynd: Linda litla

Þú ert alveg ótrúleg, ef að þetta hefði verið ég, þá hefði gemsinn bara fest sig á milli minna krumpuðu rasskinna

Linda litla, 12.3.2008 kl. 00:10

13 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Jóna er bara ekki einhver hrukka þar sem talan 5 á símaborðinu lenti undir þínum ávala rassi.

Eiríkur Harðarson, 12.3.2008 kl. 01:58

14 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Snilldarrass!

Bjarndís Helena Mitchell, 12.3.2008 kl. 02:18

15 Smámynd: Gunna-Polly

snilld

Gunna-Polly, 12.3.2008 kl. 08:11

16 Smámynd: Dísa Dóra

híhíhíhí þér tekst alltaf að sjá alveg yndisleg skemmtilegheit út úr lífinu

Dísa Dóra, 12.3.2008 kl. 08:15

17 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 08:16

18 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm... annað hvort er síminn með mjög stóru talnaborði, eða... "kúlan" er mjög vel staðsett.  Á einangruðu svæði.  Og áberandi.  (Annars hefðirðu hitt á aðra takka líka.)

Einar Indriðason, 12.3.2008 kl. 08:26

19 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þú ert svo mikið rassgat!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.3.2008 kl. 08:44

20 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Ásta Björk Hermannsdóttir, 12.3.2008 kl. 08:44

21 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég fékk skammir fyrir að hringja óvart, þar sem rassinn lagði ekki á, heldur hélt símtalið við rassinn áfram. (Ég vona að ég hafi ekki prumpað)

Rúna Guðfinnsdóttir, 12.3.2008 kl. 08:59

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ERT með rassablæti addna en þorir ekki að viðurkenna það. Rosalega er þetta viðkvæmur símafj.... er etta Blueberry?  Annars góð.  Hví allar þessar kjötbollur kona?  Hvað varð um hin gullna meðalveg?

Have I told you lately that I love you?  I guess not

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.3.2008 kl. 09:26

23 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég hef aldrei hringt með rassinum en ég er forvitin að prófa það til að tékka stinnleikann á mínum botni

Guðríður Pétursdóttir, 12.3.2008 kl. 09:28

24 Smámynd: M

Nú skellti ég uppúr ein hér á skrifstofunni.  Alveg frábær !!

M, 12.3.2008 kl. 09:49

25 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, elskulegust, þú ert bara fyndin og ekkert annað.  Sumir mundu sjálfsagt týna sínum síma á þessum stað, en þú !! þú bara ýtir á fimm 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.3.2008 kl. 10:27

26 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Stundarðu lyftingar? Þekki slatta af aflraunamönnum og þeir kvarta yfir því að rassinn á þeim stækki svo við réttstöðulyfturnar. Sér maður þig kannski í næsta Vestfjarðavíkingi?

Helga Magnúsdóttir, 12.3.2008 kl. 11:13

27 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er nú bara frábær

Kristín Katla Árnadóttir, 12.3.2008 kl. 12:02

28 identicon

Hvernig ertu af Gyllinæðinni elskan, eretta ekki að koma hjá þér

 Koss og knús   Fríða brussó (hver var brussan í þessu tilviki?????)

Fríða Sjöfn Lúðvíksdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 13:15

29 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

...mér tekst reyndar að hringja óvart í ótrúlegusta fólk alveg úr miðri símaskrá sem er ekki á speed-dial þannig að ég ákvað að skipta yfir í samlokusíma. Mun betra. En rassinn á þér er greinilega til ýmissa hluta gagnlegur , það er þér til tekna að hafa ekki talað með honum samt. Sumir gera allt of mikið af því.

Laufey Ólafsdóttir, 12.3.2008 kl. 14:52

30 Smámynd: Auðun Gíslason

Áhugamál kvenna?

Auðun Gíslason, 12.3.2008 kl. 15:50

31 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 12.3.2008 kl. 19:25

32 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

skondið að heyra svona sögu af bókstaflegri rassahrigingu. hér á bæ er það kallað að hringja með rassgatinu þegar fólk hringir svona óvart, hvort heldur síminn er í vasa eða tösku.

Brjánn Guðjónsson, 12.3.2008 kl. 19:50

33 Smámynd: Ómar Ingi

Já ég þekki konu sem er með svo stóran rass að hún er með sitt eigið póstnúmer og viti menn hún getur ekki hringt með rassinum sínum

Jóna þú ert snillingur

Takk

Ómar Ingi, 12.3.2008 kl. 20:31

34 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Eftir viðbrögðum að dæma hefur þú komið inn á áhugasvið mjög margra

Hallmundur Kristinsson, 12.3.2008 kl. 20:45

35 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Varst þú í líkamsrækt hjá konunni sem æpir alltaf í hátalara"KÚLURASS, kúlurass, kúlurass" með gargandi teknótónlist undir, ég var alveg að verða vitlaus og þegar hundrað konur voru farnar að æpa með henni.. kúlurass, kúlurass.bláar í framan af áreynslu,  þá skipti ég um Stöð.  Ég hefði kannski betur verið kyrr og haldið áfram að æfa og garga með,-  hver veit hvert ég gæti þá hringt núna? 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.3.2008 kl. 22:52

36 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

bara frábær..

Agnes Ólöf Thorarensen, 12.3.2008 kl. 23:55

37 Smámynd: Jens Guð

  Það er ekki bara atvikið sem er broslegt heldur stílbragðið hvernig þú segir frá sem fékk mig til að skella upp úr.

Jens Guð, 13.3.2008 kl. 00:19

38 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Jóna, þú ert algjört gull!

titrarann á næst

Guðrún Jóhannesdóttir, 13.3.2008 kl. 00:41

39 identicon

Ha ha ha!!´Ég brjálast!!!!!

Klárlega tæknitröll aldarinnar.....

Bergljót Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband