Leita í fréttum mbl.is

Bretinn með eldri konu

 

Bretinn er 10 árum eldri en ég. Bara svo það sé á hreinu.

Í gær fórum við í fertugs afmæli til Ástu vinkonu. Af því tilefni fór litla krúttið þ.e. afmælisbarnið, upp á stól og bað um orðið. Ég þarf að játa svolítið fyrir ykkur, sagði hún. Ég heiti Ásta og ég er fertug.

Að meðtöldu afmælisbarninu vorum við fjórar úr gamla vinkvennahópnum á staðnum . Við hinar þrjár notuðum tækifærið um kvöldið og fögnuðum því ákaft að vera 39 ára. Það er nefnilega allt annað mál. Berlínar Brynja, sem varð fertug í janúar, var fjarri góðu gamni. Það var nú samt hringt í hana nokkrum sinnum í gærkvöldi til að upplýsa hana um gang mála.

Þetta var yndislegt kvöld. Mikið hlegið en líka mikið grátið. Með lítilli uppákomu/skemmtiatriði þar sem rifjuð voru upp 30 ára vinátta okkar stelpnanna, grættu vinkonurnar þrjár, afmælisbarnið-Ástu, Fríðu-mömmu og Stebba-pabba. Valla-bróður held ég bara líka og einhverja fleiri. 

Vá hvað það er skrítið að tala um að hafa  þekkt einhvern í 30 ár þegar mér finnst ég ekki vera degi eldri en 18 ára. 

Bretinn kom aðeins seinna en ég í partíið og ég varð ástfangin all over again þegar ég sá skyndilega þennan fjallmyndarlega mann standa í hinum enda stofunnar. Í svörtum jakkafötum með dökkt úfið hár, nákvæmlega eins og ég vil hafa það. Og mér varð hugsað til orðaskipta okkar frá deginum áður:

ég: þú þarft að fara að raka þig

Bretinn (strýkur yfir skeggið): já ég þarf að fjarlægja þessi hár úr andlitinu á mér svo fólk geti séð mitt unglega andlit. And when we go to the party tomorrow, people will stare and say: what is HE doing with an older woman.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þú ert frábær

Hrönn Sigurðardóttir, 16.2.2008 kl. 19:22

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Tek undir með Hrönn, þú ert frábær

Svanhildur Karlsdóttir, 16.2.2008 kl. 19:30

3 identicon

Barasta krúttpar dagsins og ég í bullandi öfund

Margrét (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 19:32

4 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHAHA

Kysstu Nick frá Kallinum

Ómar Ingi, 16.2.2008 kl. 20:00

5 identicon

Æ þið eruð svo yndislega geggjuð

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 20:20

6 identicon

Snillingur!

Ragga (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 20:42

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

þið erruð bara snilld

Guðrún Jóhannesdóttir, 16.2.2008 kl. 20:52

8 Smámynd: Kreppumaður

Skemmtileg saga.  Fíla alla Breta!!!  Þeir eru mestu töffararnir.

Kreppumaður, 16.2.2008 kl. 21:28

9 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Þið eruð alveg frábær fjölskylda.

Bergdís Rósantsdóttir, 16.2.2008 kl. 21:29

10 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Högni Jóhann Sigurjónsson, 16.2.2008 kl. 21:33

11 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

OOOhh svo sætt

Sigrún Friðriksdóttir, 16.2.2008 kl. 21:56

12 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

So Happy Together Lovely humour

Eva Benjamínsdóttir, 16.2.2008 kl. 22:14

13 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.2.2008 kl. 22:22

14 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

looooove

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.2.2008 kl. 22:43

15 Smámynd: Dísa Dóra

hahaha yndisleg hjón

Dísa Dóra, 16.2.2008 kl. 22:52

16 identicon

  Ástir samlyndra hjóna. Hvað er betra í lífinu  Megi gæfa fylgja ykkur, alltaf.

Auður (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 23:15

17 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Flottur Bretinn

Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.2.2008 kl. 00:54

18 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

oooo..þið eruð svo krúttuleg...

Agnes Ólöf Thorarensen, 17.2.2008 kl. 01:19

19 Smámynd: Linda litla

hehehehe ég er sammála öllum hinum, þið eruð svo  mikil krútt.

Linda litla, 17.2.2008 kl. 01:32

20 Smámynd: Sporðdrekinn

 Það er gott að elska og vera elskaður.

Sporðdrekinn, 17.2.2008 kl. 01:46

21 Smámynd: AlliRagg

Hann er orðheppinn strákurinn!

AlliRagg, 17.2.2008 kl. 02:25

22 identicon

Ég veit nákvæmlega hvernig þér líður ljúfust. Gangi ykkur allt í haginn    Allra bestu kveðjur, E.

Edda (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 02:29

23 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Hehe, má alltaf vona! Krúttleg saman!

Sigríður Hafsteinsdóttir, 17.2.2008 kl. 03:24

24 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hehehe Jóna þið eruð bara krakkarassgöt!!!   En alveg hræðilega dúlluleg, þú number one að sjálfsögðu, síðan kemur þín yndislega skrautlega familía.

Ía Jóhannsdóttir, 17.2.2008 kl. 04:08

25 Smámynd: Ásgerður

Góður

Ásgerður , 17.2.2008 kl. 10:53

26 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

knús knús

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 17.2.2008 kl. 11:22

27 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flott sagt !

Bless í bili

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 12:04

28 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það vantar mikið í líf þeirrar manneskju sem elskar ekki eða  er ekki elskuð. Til hamingju með hvort annað.

Rúna Guðfinnsdóttir, 17.2.2008 kl. 12:30

29 Smámynd: Hulla Dan

Æ svo krúttlegt.

Hulla Dan, 17.2.2008 kl. 13:26

30 Smámynd: SigrúnSveitó

bara sammála, þú ert flott og frábær!

SigrúnSveitó, 17.2.2008 kl. 13:38

31 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Húmorinn í lagi hjá bretanum eins og hjá þér, snilld.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 14:56

32 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Þetta fannst mér fyndið...expressions 483

Guðríður Pétursdóttir, 17.2.2008 kl. 15:32

33 Smámynd: Heidi Strand

  Góður.

Heidi Strand, 17.2.2008 kl. 16:14

34 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Var bara að sækja mér smá bros í drunganum

Högni Jóhann Sigurjónsson, 17.2.2008 kl. 16:15

35 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fyrir mér eruð þið bæði barnung, en þetta er flott færsla hjá þér knús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.2.2008 kl. 17:25

36 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Knús

Svava frá Strandbergi , 17.2.2008 kl. 17:29

37 Smámynd: Gunna-Polly

kallinn minn er 2 árum eldri en ég og i am living whith að older man

Gunna-Polly, 17.2.2008 kl. 17:31

38 identicon

  snilli....

Bergljót Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 18:11

39 identicon

Snillingur er Bretinn þinn.hehehehehehehe

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 19:46

40 identicon

Uss... minn er 14 árum yngri en ég og ég yngist bara upp

lettfimmtug (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 22:13

41 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Hvernig sem hárvöxtur á andliti bretans er háttað, þá liggur það ljóst fyrir, að hann má stoltur af sinni konu.

Kjartan Pálmarsson, 18.2.2008 kl. 09:00

42 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Pottþétt góð saman

Guðrún Þorleifs, 18.2.2008 kl. 11:39

43 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þið eruð yndisleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 18.2.2008 kl. 15:04

44 Smámynd: Rebbý

þið eruð bara snúllur

Rebbý, 18.2.2008 kl. 21:06

45 identicon

Guðrún B. (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 21:07

46 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Bjarndís Helena Mitchell, 18.2.2008 kl. 22:00

47 identicon

....get ég fengið að sjá mynd af þessum fjallmyndarlega Breta..?

Berglind (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 22:31

48 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er alltaf aðdáandi hérna þess 'einhverfa' & 'gelgjunnar' & 'bretans', reyndar sérstaklega fyrir hans eðalhúmor.

Hmmm...

Þúrt örugglega ágæt líka ~ezzgan~ ...

Steingrímur Helgason, 18.2.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband