Leita í fréttum mbl.is

Þessi litla stúlka er mér ofarlega í huga um þessar mundir

 

 Fyrir mörgum, mörgum árum síðan......

 

Þær vöknuðu um miðja nótt við hvíslandi raddir á neðri hæðinni. Margar raddir sem voru þandar af geðshræringu. Þær læddust niður. Tvær 8 ára vinkonur með svefndrukkin augu og úfið hár. Önnur næturgestur hjá hinni.

Jólin voru á næsta leiti og birtan frá jólatréinu lýsti upp stofuna. Raddirnar þögnuðu þegar þær birtust og allra augu beindust að þeim. Enginn kom upp orði og þær skildu að eitthvað hafði komið fyrir. Litli næturgesturinn átti ekki afturkvæmt heim. Það var ekkert til að snúa heim til. Ekkert hús. Engin fjölskylda. Allt var farið.

Daginn eftir fór fólkið í örvæntingu sinni með hana í innkaupaleiðangur. Hún átti að velja sér eitthvað. Leikföng eða hvaðeina sem barnshugurinn girntist.

Hún var fljót að velja. Tvær hvítar og tvær bláar. Hvítar fyrir mömmu og pabba. Bláa fyrir stóra bróður og bláa fyrir litla bróður. Sálmabækur sem þau gætu tekið með sér. Jólagjafir frá litlu stúlkunni. Hennar leið að kveðja.

Og lífið hélt áfram..

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er ekki löng færsla en hún bítur mann í hjartað, hún er svo sorgleg

Ragnheiður , 28.9.2007 kl. 00:23

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

úff,tessi færsla hefur sannarlega áhrif á mann

Guðrún Jóhannesdóttir, 28.9.2007 kl. 00:25

3 Smámynd: Sigríður B Sigurðardóttir

Æi Jóna mín

Sigríður B Sigurðardóttir, 28.9.2007 kl. 00:25

4 identicon

úff, þetta hefur verið átakakanlegt - mikið sem hefur gerst í kringum þessa stuttu frásögn

Rannveig Margrét Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 00:34

5 identicon

Ó vá hvað þetta er sorglegt ...

... orðin eru eitthvað að bregðast mér núna, elsku Jóna. Hjartahlýjar kveðjur samt!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 00:35

6 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Ég vona bara að þessi saga sé ekki sönn. Þvílík sorg!

Bjarndís Helena Mitchell, 28.9.2007 kl. 00:41

7 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 28.9.2007 kl. 00:43

8 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Þessi stutta saga nístir mann inn að beini

Magnús Paul Korntop, 28.9.2007 kl. 00:54

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þúsund kossar knús og kremja til þín elsku bloggvinkona mín Love you.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 01:36

10 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

Það er eiginlega of erfitt að lesa þetta

Guðríður Pétursdóttir, 28.9.2007 kl. 01:57

11 Smámynd: Ásta María H Jensen

Manni langar að faðma þessa stúlku

Ásta María H Jensen, 28.9.2007 kl. 03:03

12 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Ùff... tár í augum eftir lestur. Orðvana. Kveðja til þín

Guðrún Þorleifs, 28.9.2007 kl. 05:47

13 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

1-2. hluti 3.hluti  4.hluti 5.Hluti
Hvenær kemur framhaldið?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.9.2007 kl. 07:56

14 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

úff þetta er of sorglegt.  Auðvita gerist svona reglulega og það er svo óréttlátt.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 28.9.2007 kl. 08:17

15 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Ég hugsa líka til hennar - og mér þykir verulega vænt um hana

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 28.9.2007 kl. 09:07

16 Smámynd: Ómar Ingi

Lífið Úff lífið

er ekki alltaf jafn yndislegt

og þessi saga sannar að ekki þarf að hafa magnaðar sögur langar

Ómar Ingi, 28.9.2007 kl. 09:31

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Faðmlag til þín

Hrönn Sigurðardóttir, 28.9.2007 kl. 10:12

18 identicon

Úff. Þessi kom öllu af stað

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 10:14

19 identicon

Nú fékk ég gæsahúð Jóna, og hún er enn.

Hlýtt faðmlag til þín elskan mín.

Katrín Brynja (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 10:21

20 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

úff þetta er sorglegt

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 28.9.2007 kl. 10:31

21 identicon

ufff..maður fer í huganum mörg ár aftur í tímann og rifjar upp þennan örlaga dag..

mér er títt hugsað til ykkar allra.....ps.eg rambaði her inn á bloggið þitt um daginn mer finnst þú frábær penni ,nú eru allir á heimilinu farnir að filgjast með blogginu þínu....stórt knús...jobba frænka.

járnbrá Hilmarsdóttir. (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 10:40

22 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 28.9.2007 kl. 10:52

23 identicon

Afsakið heimsku mína !

Hvers vegna öll þessi sorg ?

Ég skil ekki þessi viðbrögð lesenda færslunnar, enda heimskur að upplagi !

Getur einhver vitrænn upplýst vitleysinginn ?

kv

Sighvatur

Sighvatur (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 11:23

24 Smámynd: Hugarfluga

Það sem lagt er á manneskjuna.  *Grát*  

Hugarfluga, 28.9.2007 kl. 11:45

25 Smámynd: kidda

Knús

kidda, 28.9.2007 kl. 12:14

26 Smámynd: Heiða  Þórðar

Kærleikskveðja fyrir að hreyfa við mér

Heiða Þórðar, 28.9.2007 kl. 12:53

27 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er dáldið mikið sorglegt - bara harmleikur - var að vona að þetta væri saga en er búin að átta mig á að þetta er raunveruleiki og staðreynd. Allt of mikið. Knús á þig og faðmlag.

Edda Agnarsdóttir, 28.9.2007 kl. 14:25

28 Smámynd: Bergþóra Guðmunds

Þessi saga var stutt en mikið var hún átakanleg

Góða helgi

Bergþóra Guðmunds, 28.9.2007 kl. 15:51

29 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Þetta kemur við mann,nokkuð ljóst. Risa risa stórt knús og enn meira knús   

Kjartan Pálmarsson, 28.9.2007 kl. 15:53

30 identicon

Þetta var sár reynsla sem tekur suma ævina alla að vinna sig frá. 

Helga Þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 15:56

31 Smámynd: Huld S. Ringsted

Knús

Huld S. Ringsted, 28.9.2007 kl. 16:30

32 Smámynd: Þröstur Unnar

Veit ekki hvað ég á að segja, en bara finn til.

Þröstur Unnar, 28.9.2007 kl. 17:16

33 identicon

Sorgleg lesning. Knús

Bryndís R (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:34

34 Smámynd: Sigrún Ósk Arnardóttir

Úff

Sigrún Ósk Arnardóttir, 28.9.2007 kl. 19:48

35 identicon

Raunveruleikinn er oft ótrúlegri en skáldskapurinn! Ég man eftir þessum atburði og fylltist sorg og vanmætti! En það er mikil gjöf og gæfa að geta skrifað um þetta eins og þú gerir! Kærar þakkir og haltu þessu áfram!

Guðlaug Freyja (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 19:53

36 Smámynd: Hjördís Ásta

Hjördís Ásta, 28.9.2007 kl. 20:34

37 identicon

Elsku Jóna.

Þú ert einstök og ótrúlegur persónuleiki, sýnir okkur hversu stek og skynsöm þú ert.

Knús

Elísa (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 21:41

38 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mikið er þetta sorglegt

Knús til þín

Marta B Helgadóttir, 28.9.2007 kl. 21:54

39 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Knús til þín

Bergdís Rósantsdóttir, 28.9.2007 kl. 21:58

40 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Getur enginn sett sig í spor átta ára stelpu í þessum sporum nema hafa verið þar. En ef ég ætti tímavél myndi ég vilja fara aftur í tímann og segja henni að þó að veröldin hennar hefði hrunið myndi henni takast að byggja hana upp aftur og verða einstök kona.
Langar að knúsa stelpuna en hneygja mig fyrir konunni

Heiða B. Heiðars, 28.9.2007 kl. 21:58

41 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Þórdís Guðmundsdóttir, 28.9.2007 kl. 23:23

42 Smámynd: Sigríður B Sigurðardóttir

Jóna mín, mér finnst þú HUGRÖKKUST, STERKUST, og DUGLEGUST

Kveðja Sirrý

Sigríður B Sigurðardóttir, 28.9.2007 kl. 23:35

43 Smámynd: Steinn Hafliðason

Steinn Hafliðason, 28.9.2007 kl. 23:50

44 Smámynd: Ívar Pálsson

Þetta er stór færsla. Það tekur á að lesa þetta, hvað þá að miðla þessu.

Ívar Pálsson, 28.9.2007 kl. 23:57

45 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Ekki segja mér Jóna að þú hafir verið 8 ára í sögunni. Guð hvað þetta er átakanleg saga. Lífið getur stundum verið svo kalt og óútreiknanlegt eins og það er annars gott þess á milli.

Bloggknús til þín fyrir einstakan pistil :)

Hólmgeir Karlsson, 29.9.2007 kl. 00:03

46 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Mjög sorglegt en ég vona að þetta sé bara saga en ekki eitth.sem skeði

Katrín Ósk Adamsdóttir, 29.9.2007 kl. 00:10

47 Smámynd: krossgata

Sorglegt.   8 ára hjá vandalausum og heimurinn hrynur.  Þá á maður ekki mörg orð eða staði til að tjá sig.  Verkin segja öðrum meira en 1000 orð, en allar tilfinningarnar eru kannski eftir þarna inni svo hún getur varla andað.  Mikið vona ég að hún hafi öðlast andrými í dag. 

krossgata, 29.9.2007 kl. 00:42

48 Smámynd: Kej

Æi.

Kej, 29.9.2007 kl. 10:50

49 Smámynd: Ólöf Anna

Ólöf Anna , 29.9.2007 kl. 11:39

50 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lalala og meil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.9.2007 kl. 13:54

51 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég ruglaðist á færslu! Var alveg viss um að ég væri búinn að lesa þessa og skrifaði bara athugasemd sem var alls ekki passandi... þetta er gott dæmi um það þegar maður vill sökkva niður og hverfa, skipta um rás o.s frv...

Þetta er sorgleg færsla... um hvern fjallar hún?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.9.2007 kl. 14:16

52 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk fyrir komment krakkar mínir. Sagan er ekki um mig... ekki beint. Hún er um mig og mína...

Hæ Jobba frænka  takk fyrir kveðjuna

Helga hálfsystir... þú ert snúlla

Guðlaug Freyja, á ég að vita hver þú ert?

Gunnar Helgi, þú gerðir ekkert af þér

Jóna Á. Gísladóttir, 29.9.2007 kl. 14:28

53 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þett er samt erfitt að skilja....ert þú stúlkan sem misstir? Eða stúlkan sem varðst vitni af missirnum? Vont að skilja okkur eftir í spurningunni elsku Jóna mín.

Maður veit ekkert hvernig maður á að bregðast við. Þetta er samt svo sorglegt.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 02:03

54 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er alls ekki sammála þessu Katrín.  Kannski er þetta saga, kannski reynsla, jafnvel hvorutveggja.  Mér finnst ekki að neinn skuldi manni skýringar á hugverki sínu.  Það er bara að njóta.

Meil honey.  Ó ég er ekki á nýjustu færslu, þorrí fer á hina til vonar og vara.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2007 kl. 11:59

55 identicon

Þessi saga er búin að ásækja mig, hvað gerðist eiginlega??

Dabba (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 13:29

56 Smámynd: Halla Rut

Sorgleg saga. Vona að það sé betri endir.

Halla Rut , 30.9.2007 kl. 18:12

57 Smámynd: Jón Ragnarsson

Sönn eða skálduð, þetta er nú með því sorglegasta og fallegasta sem ég hef lesið lengi. 

Jón Ragnarsson, 30.9.2007 kl. 23:38

58 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Sigríður Hafsteinsdóttir, 1.10.2007 kl. 00:11

59 identicon

Hæ Jóna,Rakst á síðuna þína og vildi kvitta.Þessa elsku vinkona mín sem þú lýsir hér er hún var 8 ára fær mann til að hugsa margt og mikið, ég kanski vil ekki tjá mig svo mikið um það hér en núna er hugur minn mikið hjá henni eins og reyndar ansi oft. Kíki örugglega hér aftur á þig :)  Bestu kveðjur til hennar frá mér og mikið knús.

Erna Friðriksd (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 1639944

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband