Leita í fréttum mbl.is

Sumarfrí og strípur

Almáttugur hvað mig er farið að langa í sumarfrí. Allt í einu. Þetta er eins og með hárið á mér. Ég lít í spegil og er bara ánægð með hausinn á mér. Sólarhring seinna lít ég í spegil og mig vantar að komast í strípur. Núna. Strax. Hef einhvern vegin aldrei vit á því að panta næsta stríputíma í tæka tíð. Að fá tíma í strípum og klippingu hjá þessum snillingum sem fara höndum um hausinn á mér er nokkurra vikna prósess. Ég hringdi í dag á stofuna.

Hvenær get ég fengið tíma hjá Óla? spurði ég stúlkuna

Augnablik sagði hún og ég heyrði hana fletta í bókinni. Og ég heyrði hana fletta í bókinni. Og ég heyrði hana fletta. Og fletta....

Ertu komin í október? Spurði ég örvæntingarfull.

Hún hló. Ekki alveg svaraði hún.

Ég fékk tíma 10. ágúst. Sem er reyndar allt í lagi. Nema að ég vakni í fyrramálið og það verði Bad Hairday.

Ég aftur á móti VEIT að ég vakna í fyrramálið og það verður Bad Workingday. Nenn'ess'ekki.

Sumarfrí takk. Núna. STRAXbadhairday

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

vona þín vegna að þú verðir ekki farin að líkjast kisanum á myndinni þegar kemur að tímanum þínum

Huld S. Ringsted, 26.7.2007 kl. 00:51

2 Smámynd: Elín Arnar

Svo er alltaf hægt að setja á sig hatt

Elín Arnar, 26.7.2007 kl. 00:56

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Á ekki að taka neitt meira sumarfrí kona?

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.7.2007 kl. 01:02

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Huld ég ætla að vona það en maður veit aldrei.

Elín það er svo djöfulli erfitt að sitja með símaheyrnartól á hausnum undir hatti

Jenný jú í ágúst einhvern tíma. GET EKKI BEEEEEEEEEEEEEEEEÐIÐ

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 01:05

5 identicon

Gat ekki hugsað mér að fara að sofa án þess að kíkja hér inn fyrst - Takk fyrir afmæliskveðju

Þú átt SVO mikið skilið sumarfrí miðað við alla aksjónina í sumar - eða man ég ekki rétt að þú sért búin að vera að brillera í alls kyns garðverkum, málningarvinnu og þaðan af fleiru til viðbótar við vinnuna?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 02:02

6 Smámynd: Jens Guð

  Þegar ég heyri af vandræðum kvenna varðandi strípur,  andlitsfarða og annað í þeim dúr fagna ég því að vera laus við svoleiðis "pjatt".   Fyrir nokkrum dögum þótti mér hárið á mér vera farið að vaxa leiðinlega út í loftið fyrir ofan eyrun.  Það var líka lengi að þorna eftir sturtu.

  Ég greip því skeggsnyrtinn minn,  stillti hann á 1/2 cm og rakaði hárið af hliðum og eitthvað aftur á hnakka.  Svo klippti ég einhvern slatta ofan af kollinum með venjulegum skærum.

  Þetta er allt vel skakkt og í stöllum.  Sömuleiðis er mér sagt að hnakkinn sé frekar illa klipptur.  Ég held samt að þetta sé ekkert verra en hjá Donald Trumph. 

Jens Guð, 26.7.2007 kl. 02:04

7 Smámynd: Halla Rut

flottur kisi

Halla Rut , 26.7.2007 kl. 02:31

8 identicon

Töfrar hins hárþunna manns ... ég þarf sem betur fer aldrei aftur að bíða eftir hárgreiðslu, ég er frjáls! Einu sinni var ég hárprúður og frjáls ... núna er ég bara prúður og frjáls ... eða sennilega myndi ég flokkast sem bara frjáls, þar sem ég get verið óprúður stundum ... og frjáls ... hmm ... er heitbundinn yndinu mínu ... úff.

Ég er ekkert!!

Extra kraftar, knús og kveðjur svo dagurinn verði aðeins betri!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 09:23

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Eigðu góðan dag .

Kristín Katla Árnadóttir, 26.7.2007 kl. 09:45

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Sko Anna. Ég vissi að þið yrði næs að fá þig til baka

Jens. Skamm skamm. Láttu þér ekki detta í hug að svona tiktúrur séu í lagi vegna þess að þú ert karlmaður. Lágmark að láta hársnyrti sjá um hárið á sér.

Halla. Kisinn er geðillur og finnst hann sjálfur sko ekki flottur

Arna og Lísa. Þetta er að skella á. Var að ákveða á þessu andartaki að ég ætla í sumarfrí 7. ágúst. jibbííííííííí.

Lísa. Æi þetta hljómar eins og ég sé eitthvað snobbhænsn. Ég er bara svo sérvitur þegar kemur að hárinu á mér að ég vil bara halda mig við það sem ég þekki.

Sömuleiðis Kristín mín.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 11:01

11 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hvað gerist ef þú lætur strípurnar vaxa úr?

Edda Agnarsdóttir, 26.7.2007 kl. 11:17

12 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Mér finnst kisa sæt...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.7.2007 kl. 11:32

13 Smámynd: Ómar Ingi

No Comment

Ómar Ingi, 26.7.2007 kl. 11:40

14 identicon

Hæ Jóna mín.

Frábært bloggið þitt. Vissi ekki að þú værir rithöfundur á leið upp úr skúffunni en það er svo margt sem ég ekki veit Langar svo að ná sambandi við þig aftur þ.e.a.s. ef þú nennir að þekkja okkur.

Er með mailið elisaaf@kopavogur.is. Kveðja frá öllum köllunum  og kettinum Bjarti

Elísa (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:09

15 identicon

Hmm, ég er nú lærð hárgreiðslu.. eitthvað ! Vinn nú ekki við það,  En ég get reddað þér sko

Svo er líka bara málið að nota buff í sólinni. Þá sér engin á þér hárið. 

Skil það vel að þig hlakki til að komast í frí .. ! Ég vildi að ég fengi svoleiðis.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:41

16 identicon

Gerðu eins og ég...litaðu sjálf. Svínvirkar. Ég er nefnilega með STRAX-veikina á háu stigi. Nema ég mæli ekki með aflitun 3svar sama daginn. Þá fær maður tyggjóhár og það þarf að klippa og þá fær maður miklar skammir frá hárgreiðslupersónunni og maður lofar og sver að gera aldrei svona aftur og fer út með kiwi haus og skrítinn háralit

Dúa (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 12:41

17 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað er þetta með okkur konur og hárið á okkur. Við erum kannski svo ánægðar og svo allt í einu vöknum við upp og allt er handónýtt, strípur strax, lit eða heimsyfirráð.  Ætlarðu ekki bráðum í frí. ??

Ásdís Sigurðardóttir, 26.7.2007 kl. 12:56

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Elísa mín. Auðvitað vil ég þekkja ykkur. hahaha. Sendi þér póst.

Guðrún afhverju færð þú ekki frí?

Dúa. Ég hef gengið í gegnum þetta allt saman en óx upp úr þessu um tvítugsaldurinn

Ásdís. Ég veit það ekki. veit það svei mér þá ekki. Ætla í frí 7. ágúst

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 13:39

19 identicon

Jóna, ég er að ala upp 3 stráka !! Hvað heldurðu nú að sé mikið frí í því ?

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 15:12

20 identicon

Jóna mín ég er bara  svo ung ennþá

Dúa (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 16:03

21 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Guðrún. Bara pakka þeim saman og geyma inn í skáp nokkra tíma á dag.

Ég veit Dúa mín. Og verður sífellt yngri

Jóna Á. Gísladóttir, 26.7.2007 kl. 16:24

22 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Þú ert þvílíkur snilldarpenni

Kolbrún Jónsdóttir, 26.7.2007 kl. 20:49

23 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

ég fer afskaplega sjaldan í svona, fæ aldrei svona þörf að veeeerða að fara í klippingu eða eitthvað

Guðríður Pétursdóttir, 26.7.2007 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1639952

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband