Leita í fréttum mbl.is

Maður er bara orðinn hagmæltur

HaloSá Einhverfi kom heim úr sumarbúðunum með hor í nös og hósta. Var svo kominn með hitavellu í morgun svo hér sit ég, heima, og get ekki annað.

Ætti svo sannarlega að nota tækifærið og gera eitthvað uppbyggilegt fyrir heimilið og ekki síður nýta góða veðrið og reita illgresi. Barasta nenni þessu ekki.

Nú er guttinn steinsofandi í sófanum í stofunni (thank God for that). Hann er búin að taka syrpu út á palli og kríta upp kreditlista í gríð og erg. Svo þegar pallhúsgögnin eru orðin fyrir listaverkasköpuninni þá á bara að færa þau til. Ef ég hefði ekki stoppað þetta þá væri ég núna með kreditlista einhverrar bíómyndar yfir endilangan pallinn hjá mér. Nýja pallinn minn!! O jæja. Fer af í næsta regnskúr.

krit

 

 

 

Gelgjan spurði með þjósti þegar hún vaknaði í morgun: ''Afhverju eru allir heima''.

 Vonbrigðin yfir heimavinnandi mömmunni (er það annars ekki partur af húsverkunum að blogga Cool ) voru þó ekki vegna þess að hún ætlaði að detta í það eða neitt slíkt. Ástæðan var sú að nú fengi hún engan verkefnalista og þar af leiðandi engan vasapening.

Ég tók nefnilega þá ákvörðun að setja henni fyrir einhver smávegis heimilisstörf á hverjum degi á meðan ég væri í vinnunni og hún fengi 200 kr á dag fyrir það. Við byrjuðum á mánudaginn og fyrstu tvo dagana hefur hún tekið þetta mjög alvarlega og gert töluvert meira en henni er sett fyrir. Er afar stolt af afrekum sínum sem hún má alveg vera, 10 ára barnið. En það spilar líka stóra rullu að mamman íhugar bónusgreiðslur þegar afrekin eru svo stór og mörg.

Hei, kannski ætti ég að taka upp krosssauminn minn sem er farinn að rykfalla ofan í poka og setjast út og sauma í sólinni.

(Setjast, sauma, sólinni. Vá næstum því ljóð. Fellur pottþétt undir menning og listir og ljóð)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

 pottþétt

Guðríður Pétursdóttir, 4.7.2007 kl. 14:16

2 identicon

Já út í sólina meðan að hún er hér. Vonum svo að hún láti sjá sig meir í sumar.

Ragga (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 14:27

3 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Þetta með rykfallna pokann með saumadótinu - eru til öðruvísi pokar með saumadóti???  Minnir mig líka á það að vera eins og "herptur handavinnupoki".....  Ekki þú og ég - nei.......

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 4.7.2007 kl. 14:43

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já Jóna mín varðu út í sólina og sauma meðan þú getur.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.7.2007 kl. 15:25

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Borgaðu barninu, hvaða nánasarháttur er þetta.  Skv. launastefnu AS'I þá eiga verkamenn rétt á fullum launum þegar verkefnaskortur hjá atvinnurekanda ríður yfir.  Þú ert ljóðræn.  Úje

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 16:28

6 Smámynd: Sólrún

Já fínt að virkja börnin í heimilisverkin og borga þeim smotterí fyrir.  Mín þrú setja í þvottavélina, þurrkarann, uppþvottavélina, ryksuga, þurrka af og svona ýmislegt sem til fellur.  Og jú auðvitað til að fá smá aur í vasann :)

Litli listamaðurinn þinn hefur greinilega viljað hafa pallinn aðeins litríkari litir lífga upp á umhverfið, svo skolast þetta nú af í næstu rigningu eins og þú sagðir sjálf

Sólrún, 4.7.2007 kl. 19:13

7 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Þú gætir líka saumað út einn kreditlista í sængurver handa drengnum  ... hann yrði örugglega kátur :)

Hólmgeir Karlsson, 4.7.2007 kl. 20:04

8 Smámynd: svarta

Hver er þessi maður? Þessi sem nú er orðinn hagmæltur. Hann virðist vera allstaðar. Skrítið hversu oft hann ætti ekki að gera eitthvað. Eins og til dæmis, maður ætti að hætta þessari vitleysu. Stundum er hann með vinum sínum og þá telja þeir ýmislegt, sbr. menn telja að Alþingi setji lög ... eða menn telja að mannréttindi séu mikilvæg. En hver er þessi maður? Og hverjir í ósköpunum eru þessir menn?

Já ég veit. Ég á að vera úti

svarta, 4.7.2007 kl. 21:16

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Maður er nefndur....

Jóna Á. Gísladóttir, 4.7.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 1639942

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband