Leita í fréttum mbl.is

Hvítar tennur og kynlíf fer saman

Vegna kommenta sem ég fékk við Stress-sólar-færslunni hér fyrr í dag er ég bara tilneydd til að setja hér inn þessa færslu.

Jenný Anna er á því að best sé að hanga inni og vernda húðina þegar sólin er á lofti.

Jens aftur á móti bendir á að sólin hefur afar marga kosti, s.s. gefur okkur D-vítamín, hvítar og sterkar tennur og bein og gerir það að verkum að við verðum aktív á kynlífssviðinu.

Eins og svo oft þá getur maður greinilega ekki bæði átt kökuna og étið hana. Annaðhvort er maður með húð eins og Nicole Kidman og þá með ljótar tennur og kynlífssveltur

eða maður er eins og leðurjakki í framan, með óhemju hvítar tennur (eins og Ross  hér um árið) og lifir villtu kynlífi.

Og þó.... hver vill stunda kynlíf með leðurjakka ? GetLost  

leather


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Í þetta skipti sem ég gerði það með leðurjakka þá voru húfurnar tvær sem viðkomandi jakkaeigandi hafði á hausnum svo mikið turnoff að ég gleymdi þessu með jakkann.  Ætti ég að prófa aftur? taktu eftir tönnunum (áralöng sólböð).

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:20

2 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hhmmm, afhverju bara ekki að hafa opinn gluggan og stinga hausnum út öðru hvoru....?

Guðríður Pétursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er bloggjöfnun í gangi?  Bæta sér upp áralangt bloggleysi.  Bara sonna spyr eins og fávíst kvendi!

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:22

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:24

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:24

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:24

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jenný hvað ertu að segja kona? Nú held ég að þú hafir étið sveppi eða eitthvað.

Já, bloggjöfnun í gangi. Þið bloggvinir mínir eruð endalaus uppspretta blogga í dag.

Guðríður. Góður punktur. eða bara ímynda sér að maður geri það og kaupa sér svo tannhvítti-efni.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2007 kl. 15:25

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahahah. róleg

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2007 kl. 15:25

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna mín er titlöulega róleg þegar ég er á sveppum, það er fyrst orðið áhyggjuefni þegar ég leik lausum hala á eigin safa.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:26

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og hættu svo þessu kynlífstali, ég perónulega hætti mér aldrei út á það svið, enda vel upp alin.  Það er ekki nema þegar fólk útí bæ fer að skrifa neðanmittis að ég á það til að missa mig

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2007 kl. 15:28

11 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

á meðan þú missir þig en ég missi þig ekki þá er mér alveg sama

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2007 kl. 15:31

12 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Hva.... ertu að reyna að dissa mig?

Ég er hérna úti að óverdósa á sólskini..... hnuff!

Þið eruð bara abbó......

Eva Þorsteinsdóttir, 30.6.2007 kl. 16:48

13 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Jóna þessi yfirskrift er ekkert smá fyndin - við erum í kasti hérna systurnar að lesa - þú ert frábær penni

Marta B Helgadóttir, 30.6.2007 kl. 18:17

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Eva. Hvernig er leðrið?

Marta. Mikið er ég glöð að geta skemmt ykkur systrunum. Það er fátt skemmtilegra en að fá hláturskast með systur sinni.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2007 kl. 18:56

15 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú er fyndin kona frúr Jóna.

Kristín Katla Árnadóttir, 30.6.2007 kl. 19:38

16 identicon

Sammála Guðríði ... en myndi snúa þessu við ... ég meina líkamspörtunum

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 19:56

17 identicon

Anna! SKAMM

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 19:56

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk Kristín. held ég.

Anna. I'm confused.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2007 kl. 21:07

19 identicon

Að lesa um leðrið minnti  mig á Spánarferð fyrir ári síðan. Ég var á stað þar sem stútfullt var af enskum eldri borgurum og þau litu eiginlega öll út fyrir að vera úr leðri... og með slæmar tennur þar að auki, ég hinsvegar veit ekki hvernig kynlífi þeirra var/er háttað :þ

Ragga (IP-tala skráð) 30.6.2007 kl. 21:59

20 identicon

Jóna! Þori ekki að útskýra mjög nákvæmlega en hún Guðríður talaði um að stinga hausnum út um gluggann öðru hverju, mér datt í hug ... æi nei annars .... vertu bara confused

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 00:48

21 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ragga. Ég er hissa á að þú hafir ekki gert vettvangskönnun.

Anna. Out with it. Ég er svo saklaus að ég get ekki ímyndað mér hvað þú átt við

Jóna Á. Gísladóttir, 1.7.2007 kl. 01:35

22 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ég persónulega geri það með konum en ekki leðurjökkum frú Jóna,en skemmtilegur pistill,ég datt næstum því af stólnum við lesturinn og gerðu mér einn greiða vinan,haltu áfram að vera bara þú þá fer allt vel.

Magnús Paul Korntop, 1.7.2007 kl. 03:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 1639863

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband