Leita í fréttum mbl.is

Hvernig ég fékk ör á hægra brjóstið

Þetta er ekki löng eða flókin saga. Því miður (fyrir ykkur) er ekkert kynferðislegt við hana heldur.

  1. Viddi var hvolpur.
  2. Hann var úti í garði.
  3. Ég heyrði hann væla ámáttlega.
  4. Ég fór út.
  5. Viddi hékk fastur á framlöppunum á girðingunni.
  6. Strokuáráttan strax komin í ljós, hafði reynt að hoppa yfir.
  7. Ég var í flegnum topp.
  8. Viddi var hræddur og meiddi sig.
  9. Ég reyndi að losa hann. Gat ekki gert það öðruvísi en að lyfta honum upp.
  10. Í hræðslukasti sneri Viddi höfðinu og glefsaði í mig. Í hægra brjóstið.
  11. Í viku var ég með tannafar á brjóstinu. Var litin hornauga af Bretanum. Hann var ekki að fíla þetta.
  12. í dag er þetta bara lítið hvítt ör.
  13. Ég erfi þetta ekki við hundinn.

Ætlaði að birta mynd af örinu en myndavélin mín virkar ekki


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þú sniðug..ég get kennt Gabríelle um örið á vinstra brjósti mínu Mwuhahahahahaha

Rúna Guðfinnsdóttir, 15.5.2007 kl. 22:47

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe leyfðu bretanum að meiða þig á hinu brjóstinu, sko even steven (það gleður hann örgla).

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.5.2007 kl. 22:57

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Rúna þó!

Jenný Bretinn er meira fyrir að vera blíður og góður. Meiri hætta á að ég meiði hann

Guðmundur: ég myndi aldrei bjarga Bretanum af girðingu ef hann biti mig.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.5.2007 kl. 23:21

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þetta getur stundum gerst.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.5.2007 kl. 23:28

5 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Með tannaför á túttum fínum
í toppi flegnum, segir sínum
að Vidd' hafi víst þetta gert.
Bið ég nú í bænum mínum
að Bretinn hlú'að brjóstum þínum
og huggi þar holdið bert.

Þorsteinn Gunnarsson, 16.5.2007 kl. 00:50

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Érfir þetta ekki við Vidda, það er fallegt af þér Jóna, en Bretann?

Sigfús Sigurþórsson., 16.5.2007 kl. 01:36

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ó,    er Bretinn hundur?

Sigfús Sigurþórsson., 16.5.2007 kl. 01:37

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þorsteinn brilliant

Sigfús, ég skil að þetta sé ruglingslegt, en nei Bretinn mun vera af homo sapiens flokki. Viddi aftur á móti gengur um á fjórum fótum og er af hundakyni.

Jóna Á. Gísladóttir, 16.5.2007 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband