Leita í fréttum mbl.is

Af afmælissöng, afmæliskertum, afmælispökkum og afrakstur löngu liðins keisara

 

Gelgjan mín er 13 ára í dag og því orðinn unglingur. Eða táningur.

Á þessu heimili er vaninn að vekja viðkomandi afmælisbarn með hinum klassíska afmælissöng, logandi kerti sem er stungið í kökusneið, múffu eða annað tilfallandi og að sjálfsögðu afmælispakka.

Á vikuplan Þess Einhverfa, sem hann fékk afhent á laugardaginn, hafði ég skrifað í mánudagsreitinn, að systir hans ætti afmæli og við ætluðum að vekja hana með afmælissöng. Hann kommenteraði nú ekkert á þetta plan. Hvorki mótmælti því né samþykkti.

Fyrir þá sem ekki vita þá er Þeim Einhverfa meinilla við áðurnefndan söng. Hvort sem verið er að syngja fyrir hann sjálfan eða aðra. Hundinum á heimilinu, Vidda Vitleysing, er jafn illa við þessa laglínu. Við slíkar aðstæður grúfir Sá Einhverfi andlitið í höndum sér eða tekur fyrir eyrun, en Viddi geltir hástöfum.

Í morgun vorum Sá Einhverfi og ég að sjálfsögðu fyrst á fætur og stráksi gekk beint að vikuplaninu þar sem það hangir á ísskápnum og las skilaboðin vandlega. Ég vissi að hann hafði áhyggjur af þessu grófa og ósvífna uppbroti á daglegum venjum hans og morgunrútínu.

Ég virti hann fyrir mér á meðan hann las, en sagði svo: Ian ætlar þú að syngja fyrir Önnu Mae? (það má alltaf lifa í voninni, ekki satt?)

NEI, sagði hann skýrt, ákveðið og hálfum tóni hærra en eðlilegt getur talist. Svo skundaði hann fram í stofu til að kveikja á Emil í Kattholti því enginn virkur morgunn getur liðið án þess.

Mér datt ekki til hugar að draga krakkann á eyrunum upp á loft til að hann gæti æpt í mótmælaskyni við rúmstokk afmælisbarnsins.

Ég græjaði hann því bara eins og alla hina dagana, kvaddi og horfði á eftir honum upp í skólabílinn.

Að því loknu útbjó ég lítinn morgunmat, greip afmælispakka undir hendina og fór upp til að draga vankaðan Breta fram úr rúminu, ásamt Unga manninum (fyrrv. Ungling) sem ákallaði Guð á meðan hann barðist við að koma sér á lappir.

það var ægifagur söngur sem barst út á götu þegar við ruddumst inn í herbergi hjá nývígðri Táningsstúlkunni. Hún vaknaði með bros á vör og kippti sér ekkert við hundinn sem stóð geltandi ofan á sænginni hennar.

Fallega andlitið ljómaði þegar hún tók við morgunmatnum og blés á kertið. Að þessu sinni var afmæliskerti dagsins stungið í ristaða brauðsneið með osti.

Þegar þessi orð eru skrifuð eru akkúrat 13 ár síðan að reiður læknir skipaði mænudeyfingu og glæfraakstur upp á skurðstofu. NÚNA!

Ég get ekki kvartað þegar ég horfi á afraksturinn af þeim keisaraskurði. Sannkölluð prinsessa hún dóttir mín, í öllum jákvæðum merkingum þess orðs.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gratjúlera henni með fæðíngardaginn & þér með guðzgöfina í henni.

Mín á þrjá mánuði í þrettán árin, en er þegar farin að fækka mínum gránandi hárum...

Steingrímur Helgason, 11.1.2010 kl. 23:58

2 identicon

Til hamingju með stelpuna

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 10:37

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Zteini minn. Er ekki ágætt að losna við þessi gráu?

Takk kærlega Birna Dís

Jóna Á. Gísladóttir, 12.1.2010 kl. 12:27

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ljúf er ávallt lesning hjá þér, til lukku með unglinginn þinn, hún á góða móðir.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.1.2010 kl. 15:09

5 Smámynd:

Hjartanlegar hamingjuóskir með stúlkuna  Stundum getur maður ekki annað en staðið agndofa gagnvart því stórkostlega sköpunarverki sem barnið manns er

, 12.1.2010 kl. 15:30

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahah ég held að Ian og Viddi hafi bara svona þróaðan tónlistarsmekk....

....til hamingju með gelgjuna

Hrönn Sigurðardóttir, 12.1.2010 kl. 19:01

7 Smámynd: Ómar Ingi

Til lukku með Los Gelgjos

Ómar Ingi, 13.1.2010 kl. 11:57

8 identicon

Til hamingju með dótturina – ég á einmitt eina sem er fædd sama mánaðardag ... varð reyndar sautján núna    Þegar hún kom í heiminn var fæðingarlæknir hangandi á töngunum með báða fætur á rúmgaflinum að toga og tvær ljósmæður að ýta á eftir barninu. Öll klædd í græn stígvél og hvíta krumpugalla. Ógleymanlegt og alveg þess virði ... svona eftir á

Sliban (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóna Á. Gísladóttir
Jóna Á. Gísladóttir

 

 

 Ég er nokkuð dæmigerð íslensk útivinnandi kona. Hef lokið grunnnámi í markþjálfun og gengur betur að hjálpa öðrum við markmiðasetningu en sjálfri mér. Mér lætur líka betur að stjórna öðrum en sjálfri mér. 

 netfangið mitt er jonaagisla@gmail.com

 

 

 

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1639952

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband